Ægir - 01.04.2000, Page 40
FISKAR
Sjaldséðar físktegundir
við íslandsstrendur áríð 1999
Jónbjörn Pálsson
Höfundar eru
starfsmenn
Hafrannsóknar-
stofnunarínnar
Árið 1999 barst fjöldi sjaldséðra fisktegunda til Hafrannsóknastofnunar líkt og und-
anfarin ár. Langflestar þessara tegunda voru veiddar innan 200 sjómílna markanna.
Engar nýjar tegundir áður óþekktar á íslandsmiðum veiddust árið 1999 en þrjár teg-
undir höfðu aðeins sést einu sinni (klumbuskeggur) til tvisvar (rauðskinni) eða þris-
var (tuðra) áður. Eftirfarandi er samantekt yfir þá sjaldséðu fiska sem bárust Hafrann-
sóknarstofnun á árinu.
Sæsteinsuga Petromyzon marínus
Ein sæsteinsuga veiddist í botnvörpu Snorra Sturlu-
sonar RE í Hvalbakshalla (64°24TSS, 12°58'V) í júlí.
Hún var 53,5 cm að lengd.
Önnur jafnlöng veiddist í ágúst rétt sunnan við
Vestmannaeyjar. Veiðiskip var Núpur BA.
Gljáháfur Centroscymnus coetolepis
1 apríl veiddist einn 78 cm langur gljáháfur í flot-
vörpu togarans Snorra Sturlusonar RE á 659 metra
dýpi á Reykjaneshrygg (6l°30TST, 27°30'V).
Maríuskata Bathyraja spinicauda
Einn 133 cm hængur veiddist í maílok suður af
Skaftárdjúpi (63°03'N, 17°50'V). Veiðiskip var
Hrafn Sveinbjarnarson GK.
Þá fengust einnig í maílok tvö pétursskip úr mar-
íuskötu á sömu slóð. Stærð þeirra var 98x138 mm og
84x138 mm, án þráða. í smærra pétursskipinu var
24,5 cm fóstur.
Brandháfur.
Brandháfur Hexanchus gríseus
Um miðjan nóvember veiddist 150 cm brandháfur á
275 metra dýpi 45 sjómílur suður af Grindavík.
Veiðiskip var Þorsteinn Gíslason GK og veiðarfæri
lína. Þetta gæti verið tíundi brandháfurinn sem fæst
á Islandsmiðum frá 1920, þegar hans varð fyrst vart. Úthafsangi.
Kambháfur.
Kambháfur Pseudotriakis microdon
Um 190 cm langur kambháfur veiddist í marslok í
net á 348 metra dýpi suðaustur af Vestmannaeyjum
(63°19,6'N, ÍO^S^-V).
Úthafsangi Mautisia microlepis
1 lok maí veiddist einn 27 cm langur úthafsangi í
botnvörpu togarans Hrafns Sveinbjarnarsonar GK
suður af Skaftárdjúpi (63°03'N, 17°50'V).
Sæangi Normichtys operosus
Um miðjan mars komu fjórir sæangar, 11-15 cm
langir, í vörpu rs. Bjarna Sæmundssonar RE á 360-
380 metra dýpi út af Flákanum undan Suðaustur-
landi (64°30'N, 12°03 V).
Veiðiskip var Skálafell ÁR.
Annar sem mældist 193 cm veiddist seint í maí suð-
. ur af Vestmannaeyjum (ó^DO'N, 20° 11 'V). Veiði-
skip var Hrafn’Sveinbjarnarsmt-GK.
Þar meðéru þeir orðnir 1 5 kíimbháfarnir ,sem funrj- '
/ið ísland'á árunum' 1900=1999.
Ránarangi Sagamichthys schnakenbecki
I apríl veiddist 10 cm ránarangi í flotvörpu Snorra
Sturlusonar RE á 659 metra dýpi á Reykjaneshrygg
(Éi»3.njl.27»20T). ;
ist hafa við Island á árungm'1900*1999.