Ægir - 01.04.2000, Síða 44
TÆKNI
Merkúr hf.:
Ný stjórntæki frá Mathers
fyrír báta og stærrí skip
Merkúr hf. hefur nýlega hafið
kynningu og sölu á Mathers
rafmagnsstjórntækjum sem
eru þrautreynd og rómuð um
allan heim, enda með mest
seldu rafmagns stjórntækjum í
dag. Fulltrúar Mathers
Controls Inc. voru í heimsókn
hjá Merkúr hf. fyrir skömmu
og héldu námskeið í uppsetn-
ingu og þjónustu tækjanna fyr-
ir sölu og þjónustumenn.
Framleiðandinn, Mathers Contols Inc. í
Bandaríkjunum hefur áratuga reynslu í
framleiðslu á rafmagns- og loftstjórn-
tækjum. Framleiðslan er öll vottuð af við-
urkenndum flokkunarfélögum t.d. DNV,
Germanischer Lloyd ofl. Tækin hafa ver-
ið notuð við hinar erfiðustu aðstæður eins
og t.d. í Alaska og Kanada þar sem mikl-
ar sveiflur geta orðið í veðurfari, tækin
vinna á jafnspennu frá 7-32 voltum.
Að sögn Jóns Ólafs Ársælssonar hjá
Merkúr hf. hefur stjórnbúnaðurinn m.a.
þá kosti að allar skipanir eru í einu hand-
fangi, þ.e.a.s. olíugjöf, kúpling og tog-
loki.
„Búnaðurinn sér til þess að ekki er
hægt að gleyma toglokanum á, sem er
eitt algengasta óhappið sem á sér stað í
gírum með snuðloka. Einnig er skemmti-
legt, ef um tvær vélar er að ræða, að mjög
nákvæmur samkeyrslubúnaður sér um að
vélarnar geta keyrt á sama hraða, sé þess
óskað," segir Jóhann Ólafur.
„Framtíðin í stjórnun véla
í minni bátum"
Hann segir í boði þriggja ára ábyrgð á
stjórntækjunum og um uppsetningu og
viðhald sér Jóhann Lúðvík Haraldsson,
löggildur rafvirki. Varahlutaþjónusta er
hjá Merkúr hf.
„Það fer ekki á milli mála að þetta er
framtíðin í stjórnun véla um borð í minni
bátum. Sem dæmi má nefna að í nýjasta
bátnum frá Trefjum ehf., mb Arna í
Teigi GK-1, sem er 38 feta netabátur,
eru tvær 350 hestafla Yanmar vélar sem
er stjórnað með Maters stjórntækjum.
Einnig hefur verið pantað eitt sett í 2ja
véla ferju sem er í smíðum hjá Samtak hf.
I Hafnarfirði. Ef notuð hefðu verið hefð-
bundin stjórntæki hefði þurft 12 stjórn-
stangir, en með því að velja Mathers raf-
magns stjórntæki þarf aðeins 2 stangir.
Eg held að allir þeir sem hafi prófað
Mathers stjórntækin séu sammála um að
hér er á ferðinni mikil framþróun í
stjórnbúnaði," segir Jóhann Ólafur Ár-
sælsson.
Raylheon
- siglingatæki í minni skip
Raytheon R80 RC HSB
Pathfinder SL Radar
7" og 10“ skjár. M-ARPA(IO'), kortaplotter(C-Map).
Autotune.Skjár 640x480 pixel, GPS staðsetning i
bendli ásamt stefnu og fjarlægð. Hægt er að skipta
skjá milli radars og plotters. 2kw, 4kw iokaður eða
opinn scanner 24-48-72 sjóm.
Raychart 630
7" LCDskjár. Fyrirferðalitill 24/28
sjóm. radar. Tengist GPS. Autotune.
10“ LCD litaplotter, upplausn 640x480 pixel.
C-Map NT kort. L/B eða Lorantöiur.
Minniskubbur fyrir ferla, leiðapunkta/merki og rútur.
íáV\
vv>
Unrall
Raytheon R106
VHF
ETSI staðall.
6W sendiafl.
Cetrek 741
Cetrek 731
Ný sjálfstýring, nýtækni.
Ný tölva: sjálfvirk aðlögun að aðstæðum.
Nýr rafeindaáttaviti: nákvæmari, öruggari.
Nýr rate gyro, ennþá stöðugri stefna.
Tengist seguláttavitum, gyro og GPS.
Hægt er að tengja aukastjórnpúlt, stýrisrofa,
stýrisvisi og áttavitaaflestur.
R.SIGMUNDSSON
S: 520 0000 • r.sigmundsson@rs.is • www.rs.is