Ægir - 01.04.2000, Side 47
SKIPASTÓLLINN
ÁSCíttÍMUR
tlALLDÓRSSON
—11
Ásgrímur Halldórsson er hió öflugasta nótaskip.
NYINNFLUTT FISKISKIP
Ásgrímur Halldórsson SF-250
Um miðjan mars 2000 keyptu fyrirtækin Skinney-Þinganes á
Hornafirði og SR-Mjöl í sameiningu skipið Ms. Lunar Bow frá Pet-
erhead í Skotlandi. Skipið er nánast nýtt tog- og nótaveiðiskip, var
smíðað árið 1996. Það verður gert út frá Hornafirði af nýju útgerð-
arfélagi, Þingey ehf., sem er í jafnri eigu SR-Mjöls og Skinney-
Þingeyjar. Ætlunin er að samnýta skipið þannig að SR-Mjöl geri
skipið út á kolmunna og síld frá apríl og fram á haustið en Skinn-
ey-Þinganes gerir skipið út á haustsíld og síöan á loðnu.
Skipið, sem siglir undir íslensku flaggi,
heitir Ágrímur Halldórsson, hélt til veiða
þann 21. mars á kolmunna norður af Ir-
landi með nýrri flotvörpu frá Hampiðj-
unni. Skipið lestar 700 til 1000 tonn af
afla en magnið eftir því hvort aflinn er
kældur eða ekki.
Skipstjórar á Ásgrími Halldórsyni SF
eru tveir, þeir Ásgrímur Ingólfsson og
Guðmundur Sveinbjörnsson. Stýrimaður
er Gunnar Þorláksson og yfirvélstjóri
Sverrir Sveinbjörnsson
Framkvæmdastjóri Þingeyjar er Aðal-
steinn Ingólfson og stjórnarmenn eru
Björn Kristinsson hjá SR-Mjöl og Gunn-
ar Ásgeirsson hjá Skinney-Þinganes.
Að sögn Gunnars Ásgeirssonar kostaði
skipið um 570 milljónir króna, án veiðar-
færa.
Saga skipsins
Skipið var nýsmíði fyrir Lunar Fishing
Co. Ltd. í Skotlandi. Það var byggt hjá
Simek AS í Flekkefjord í Noregi árið
1996, smíðanúmer 85. Skipið var smíð-
að samkvæmt kröfum Lloyd's Register of
Shipping og flokkað ( 100 A1 Fishing
Vessel - LMC. Skipið var smíðað til að
veiða síld og makríl í nót auk veiða á öðr-
um fiskitegundum í flottroll og var
fjórða skipið sem bar nafnið Lunar Bow.
Fyrirkomulag
Skipið er byggt með tvö heil þilför stafna
á milli, framhallandi stefni með peru,
gafllaga skut og frekar stutt bakkaþilfar.
Á afturskipi er brú á hæð og þar undir
þilfarshús með íbúðum. Fremst undir
efra þilfari eru geymslur, þá rými fyrir
lofttæmidælur, lestatankar (RSW) með
göngum út í báðum borðum, íbúðir og
aftast er nótakassi og stýrisvélarúm.
Fremst undir aðalþilfari er stafnhylki fyr-
ir sjó, þá sónar- og bógskrúfurými, sjó-
kælivélarúm, lest skipsins sem deilist
niður í 6 RSW tanka og undir þeim
botntankar fyrir eldsneytisolíu. Véla-
rúmið er aftan við lestatanka með tilheyr-
andi botntönkum og aftast eru skut-
geymar.
íbúðir og aðstaða áhafnar
I skipinu eru íbúðir og klefar fyrir 15
manna áhöfn auk sjúkraklefa. Á aðalþil-
fari eru fimm tveggja manna klefar og
einn þriggja manna klefi ásamt bað- og
þvottaklefa og verkstæði. Frá verkstæði er
hægt að komast fram í framskipið um
ganga stjórnborðs- og bakborðsmegin
meðfram sjókælitönkum. f þilfarshúsi á
efra þilfari eru fremst stakkageymsla og
þá tvær eins manns íbúðir stjórnborðs-
megin. Bakborðsmegin eru setustofa og
borðsalur, ásamt eldhúsi og matvæla-
geymslum og aftast í húsinu eru veiða-
færageymslur. Sjúkraklefinn er á hæðinni
yfir þilfarshúsi með útgangi út á bátaþil-
far bakborðsmegin. Á hæðinni er einnig
klefi fyrir ýmis tæki og hitakerfi. íbúðir
eru hitaðar upp með rafmagnsofnum.
47