Ægir - 01.06.2000, Qupperneq 28
umræðunnar
Hafrannsóknarstofnun setti snemma í júnímánuói fram tillögur
sinar um hámarksþorskafla næsta fiskveiðiárs, en þar var Lagt til
að ekki verði veitt meira á næsta fiskveiðiári en 203 þúsund
tonn af þorski. Akvöróun sjávarútvegsráðherra um miðjan
mánuóinn var svo sú að veiói á þorski yrði 220 þúsund tonn.
Ljóst er aö tiLLögur Hafró hafa vaLdió vaLda mörgum í sjávarút-
vegi mikLum vonbrigðum, einkum þeim sem stutt hafa þá
ströngu verndarstefnu sem fylgt hefur verið í síðustu árin - og
er byggð á ráðgjöf Hafró. En hvernig ber að túLka stöðu fiski-
rannsókna í Ljósi niðurstöðu Hafró? Stöndum við ef tiL vilL á
tímamótum varðandi fiskveiðiráðgjöf og ákvörðun afLaheimilda?
Ægir sLó á þráðinn tiL nokkurra manna sem hafa skoðanir þess-
um máLum.
28
Jafnstöðuaflamark er
umhugsunarvert
- segir Þórir Matthíasson, framkvæmdastjóri BGB-Snæfells
„Hafrannsóknarstofnun var að mínu mati
að senda frá sér tillögur sem byggðar eru
á þeirri bestu þekkingu sem stofnunin
býr yfir. En þau miklu skekkjumörk sem
eru í tillögum stofnunarinnar sýna okkur
fyrst og fremst hve lítið við vitum um líf-
ríkið í sjónum og því tel ég brýnt að auka
allt rannsóknarstarf til mikilla muna.
Auka þarf allar fjárveitingar til rannsókn-
arstarfs á þessu sviði, en þær hafa verið
nánast skammarlega litlar, þó vissulega
sjáist batamerki eins og við sjáum best
með hinu nýja hafrannsóknaskipi sem
kom til landsins fyrir skemmstu," segir
Þórir Matthíasson, framkvæmdastjóri
BGB-Snæfells hf.
Þórir segir að engu að síður sé það um-
hugsunarvert hvort endurskoða þurfi
ekki reikniaðferðir þær sem Hafró notar
við mælingar á stofnstærð og fleira í ljósi
þess hve þorskaflahámarkið hafi aukist
lítið frá því skerðingin mikla kom árið
1991.“Eg tel hins vegar af og frá að sú
umræða sem tillögur Hafró hafa skapað
hafi neitt með það að gera að menn fari að
breyta stjórnkerfi fiskveiða í landinu.
Slíkt verður fráleitt til þess að bæta
ástand fiskistofna við landið. Mikilvæg-
ast er, eins og ég segi, að bæta þekking-
una með því að efla rannsóknirnar."
Það er mat Þóris Matthíassonar að sjáv-
arútvegsráðherra hafi átt „...að taka út úr
bankabókinni sem við höfum verið að
safna í undanfarin 10 ár og halda óbreyt-
tu aflamarki í þorski milli ára. Það eru til
dæmis engin rök fyrir því að fara með
aflahámarkið niður í 220-230 þúsund
tonn, því skekkjumörkin sem er verið að
vinna með eru svo mikil. Og menn skulu
líka hafa það í huga að þorksstofninn hér
við land hefur mikið verið að styrkjast á
síðustu árum og það mun hann gera
áfram þrátt fyrir að veitt sé úr stofninum
250 þúsund tonn, samkvæmt því sem
Hafró segir. Hins vegar tel ég umhugs-
unarvert að í fyllingu tímans verði komið
upp jafnstöðuaflamarki sem þá myndi
gilda til kannski til þriggja ára, eða ein-
hvers slíks ákveðins tíma. Eg held að slík
ráðstöfun myndi gefa Hafró ákveðið svig-
rúm, en ekki síður sjávarútvegnum í
landinu. Þetta myndi jafna sveiflur og
menn gætu gert áætlanir vegna fjárfest-
inga og annarra þátta lengra fram í tím-
ann. Um leið gæfi þetta Hafró nýja
möguleika til að vinna sína vinnu.“
Þórir Matthíasson,
framkvæmdastjóri BGB-SnæfelLs.
Marel hf. óskar Hafrannsóknastofnun
og starfsmönnum hennar
til hamingju með hið glæsilega
hafrannsóknaskip, Árna Friðriksson RE 200
Um borð í Árna Friðrikssyni er
fullkomin fiskflokkunar- og skráningarlína
ásamt vogarkerfi frá Marel.
Mare/
Marel hf. • Höfóabakki 9 • 110 Reykjavík
Sínru: 563 8000
Fax: 563 8001
info('«marel.ÍB
www.marel.com
Æ
...
I •-—H