Ægir - 01.06.2000, Qupperneq 31
segir í nýrri skýrslu Hafró að veiðistofn sé
aðeins 756 þúsund tonn að stærð eða 314
þúsund tonnum minni en gera mætti ráð
fýrir að hann væri nú með jöfnum vexti
milli ára. Niðurstaðan virðist vera sú að
stofninn hafi ekki bara minnkað um það
sem veitt var, eða um 260 þúsund tonn,
heldur um 50 þúsund tonn umfram það.
Þorskstofninn hefur því minnkað um
29,3%. Það er því miklu nær að tala um
að stofninn hafi minnkað um 30% milli
ára en ekki 20% eins og Hafró hefur
haldið fram,“ segir Guðjón. Hann segir
þessa minnkun milli ára ekki fá staðist,
jafnvel þó gert sé ráð fyrir því mikla
brottkasti þorsks sem nú á sér stað vegna
„kvótabraskkerfisins", sem hann kallar
svo - og brottkastið telur Guðjón að geti
numið tugum þúsunda tonna árlega.
„Skekkjumörk upp á 20-30% milli ára
gera tillögur frá Hafró nú ekki trúverð-
ugar í ljósi þess að ráðgjöf var fylgt. Ég
tel það eigi ekki að skerða þorskaflann frá
því sem nú er, en vonandi verður umræða
á vitrænum nótum um það að taka hér
upp annað og betra veiðikerfi heldur en
það kvótabrasks- og brottkastskerfi sem
við nú notum og engum árangri skilar til
uppbyggingar á botnfiskstofnum.
„Niðurstaóan virðist vera sú að stofninn hafi ekki bara minnkað um það sem veitt var, eða um 260
þúsund tonn, heldur um 50 þúsund tonn umfram það. Þorskstofninn hefur því minnkað um 29,3%,"
segir Guðjón Arnar Kristjánsson.
Oskum Hafrannsóknarstofnunni til hamingju
með nýjan og glæsilegan
Árna Friðriksson RE 200
r
I skipinu er rafbúnaður
frá Framtaki
FRAMTAK
VÉLA- OG SKIPAÞJÓNUSTA
Drangahraunl l-lb Hafnarfjörður
Sími: 565 2556 • Fax: 565 2956
Netfang: info@framtak.ls
Heimasíða: http://www.framtak.is