Ægir

Årgang

Ægir - 01.06.2000, Side 33

Ægir - 01.06.2000, Side 33
FISKVINNSLA ir og þjálfaðir cil að verða sérfræð- ingar í alhliða vinnslu á kjöti og framleiðslu á kjötvörum. Verklegi þátturinn er mjög stór hluti af náminu. Nemar í kjötiðnaði læra bæði um vinnslu á hrávörum og tilbúnum neytendavörum. Þeir verða að kunna skil á einginleik- um hráefnis til vinnslu á söltuð- um vörum, farsvörum, gerjuðum vörum, þurrkuðum vörum o.fl. Þeir læra um eiginleika, kosti og galla aukefna og tæknilegra hjálp- arefna, bragðefna, krydds og um pökkunaraðferðir og umbúðir. Sérstakur meistaraskóli leggur áherslu á rekstur, gæðastjórnun og verkstjórn. Mikill faglegur metnaður er á meðal kjötiðnaðar- manna og á tveggja ára fresti er haldin sérstök fagkeppni. Þar keppa kjötiðnarmennirnir á fag- legum forsendum í framleiðslu hinna ýmsu vörutegunda. Þeir taka einnig þátt í fagkeppnum í öðrum löndum. Þeir eru því mjög opnir fyrir nýjungum og vöruþró- un. Fróðlegt er að bera saman rann- sókna- og þróunarstarfs í ýmsum löndum eftir uppruna þess hráefn- is sem notað er í tilbúnar neyt- endavörur. Rannsóknir á fiskveið- um og í fiskvinnslu snúast um framleiðslustjórnun, öflun hráefn- is, sjálfbæra þróun, öryggi, gæði og stöðugleika, hreinleika, vinnslutæki og sjálfvirkni. Rann- sóknir í landbúnaði, mjólkur- vinnslu og kjötvinnslu snúast um sömu atriði en lögð er miklu meiri áhersla á vinnslueiginleika hráefnis, nýtingu aukafurða, sam- spil aukefna og hjálparefna og viðhorf neytenda. Viðhorfin eru ólík því annars vegar er verið að leysa vandamál offramleiðslu en hins vegar vandamál hráefnis- skorts. Mörg tæknileg hjálparefni fyrir matvælaiðnað eru framleidd úr aukafurðum úr landbúnaði en ekki úr aukafurðum í fiskiðnaði. Munurinn á fiskiðnaði, kjötiðnaði og mjólkur- iðnaði Eðlilegar skýringar eru á munin- um á fagmenntun og rannsóknum í fiskvinnslu og vinnslu á land- búnaðarafurðum. Mikill munur var og er í öflun hráefnis. Annars vegar voru og eru veiðar oft langt frá markaðnum og hins vegar var og er búskapur oft í næsta ná- grenni við markaðinn. Þurrkun, gerjun, söltun og reyking var not- uð til að varðveita matinn. Vörur úr fiski voru fáar en fjölmargar bæði úr kjöti og mjólk. Fiskurinn kom þurrkaður, saltaður eða reyktur á markaðinn en unnið var úr öllum afurðum landbúnaðar á staðnum. Þannig þróaðist vinnsla á kjöti og mjólk í sérstakar fag- greinar en ekki vinnsla á fiski. Þá hafa pólitísk áhrif bænda alltaf verið meiri en veiðimann- anna. Niðurgreiðslur, fram- leiðslustyrkir, þróunarstyrkir og innflutningsgjöld vernduðu land- búnaðinn í viðskiptalöndunum og gerðu um leið fiskvinnslunni erfitt fyrir. Þannig hefur fram- leiðsla, vöruþróun og sala á afurð- um úr fiski, kjöti og mjólk farið mismunandi leiðir. Þessi munur er enn til staðar en fer minnandi og með alþjóðasamningum er stefnt að því að hann verði sem minnstur. A Islandi hafa framleiðenda- sjónarmiðin ráðið mestu. Enn er stjórnsýsla og opinber þjónusta við matvælaiðnað á Islandi í þremur ráðuneytum, sjávarút- vegsráðuneytinu, landbúnaðar- ráðuneytinu og iðnaðarráðuneyt- inu. Sjónarmið landbúnaðar og stóriðju hafa verið sterk á innan- landsmarkaði en sjónarmið út- gerðar við þróun á útflutningi. Fiskiðnaður og annar matvælaiðn- aður hafa að nokkru leyti mætt af- gangi. Miklu opinberu fé hefur verið varið til fiskileitar og stund- um markaðssetningar á fiski og í framleiðslustyrki fyrir sauðfjár- rækt og nautgriparækt. Hin eig- inlega úrvinnsla hefur setið eftir og hefja þarf grunnvinnu við að byggja hana upp á markvissan hátt. Hver er stefna opinberra aðila, fyrirtækja og sölusamtaka í framhaldsvinnslu á fiski? Hvað þurfum við aö kunna og geta á íslandi? Hvaða kunnáttu og getu ætlum við að flytja inn og hvað ætlum við aó byggja upp eóa kaupa í viðskiptalöndunum? Þróun á framhalds- vinnslu á fiski Trú, hefðir og vani hafa mikil áhrif á val og viðhorf neytenda til matvæla. Breytingar á neyslu- venjum taka oft mörg ár eða ára-

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.