Ægir

Volume

Ægir - 01.06.2000, Page 34

Ægir - 01.06.2000, Page 34
FISKVINNSLA tugi. Þess vegna hafa vörur úr öðr- um hráefnum ákveðið forskot á vörur úr fiski. Fyrirtæki í fiskiðnaði hafa fýlgt þeirri þróun á matvælamarkaði sem verið hefur síðustu áratugina. Stöðug vöruþróun hefur átt sér stað en framleiðsla á tilbúnum neytendavörum til útflutnings hefur átt erfitt uppdráttar hér á landi. Fjarlægð frá markaðnum og viðskiptahindranir hafa ráðið því að stóru sölufyrirtækin hafa byggt eða keypt verksmiðjur í viðskipta- löndum sem framleiða tilbúnar neytendavörur. Þó hefur fram- leiðsla á tilbúnum neytendavör- um aukist nokkuð á síðustu árum á Islandi. En framleiðsla á brauð- uðum vörum, farsvörum og pate- um er enn mjög lítil. En þróunin er hafin og vonandi á þessi fram- leiðsla eftir að aukast á næstu árum. Þróunin næstu árin? Hver er stefna opinberra aðila, fyrirtækja og sölusamtaka í fram- haldsvinnslu á fiski? Hvað þurf- um við að kunna og geta á ís- landi? Hvaða kunnáttu og getu ætlum við að flytja inn og hvað ætlum við að byggja upp eða kaupa í viðskiptalöndunum? Hér þurfa hagsmunir ekki endilega að fara saman. Langtímamarkmið stjórnvalda geta verið önnur en skammtímasjónarmið fyrirtækja og sölusamtaka í mikilli sam- keppni og erfiðum rekstri. Ástæða er til bjartsýni á þróun framhaldsvinnslu í fiskiðnaði þeg- ar litið er á afskipti stórnvalda af uppbyggingu og þróun menntun- ar og rannsókna fyrir íslenskan matvælaiðnað. Námið f Fiskvinnsluskólanum hefur verið endurskipulagt með þróun iðnaðarins í huga. Hótel- og matvælaskólinn við MK í Kópavogi er í nýju stórglæsilegu húsnæði með aðstöðu á heims- mælikvarða til verklegrar þjálfun- ar í bakstri, kökugerð, matreiðslu og kjötvinnslu. Þar hafa allar greinar matvælaiðnaðarins nema fiskiðnaður verið sameinaðar und- ir einu þaki. Þó er aðstaða til framhaldsvinnslu á fiski í sérstöku vinnslurými. Það liggur því beint við að bjóða matreiðslumönnum og kjötiðnaðarmönnum upp á framhaldsnámskeið í framhalds- vinnslu á fiski. Einnig væri hægt að bjóða upp á ákveðna starfs- menntun eða fagmenntun í fram- haldsvinnslu á fiski ef áhugi og þörf verður á því. Háskólinn á Akureyri hefur haft mikil áhrif á tengingu há- skólamenntunar og sjávarútvegs- ins. Þar er boðið upp á háskóla- menntun fyrir stjórnendur x mat- vælaiðnaðinum. Við sjávarútvegs- deild er boðið upp á nám í sjávar- útvegsfræðum og matvæla- vinnslu. Matvælaframleiðslu- brautin er sérstaklega mikilvæg fyrir framhaldsvinnslu á fiski. Lögð er áhersla á mismunandi vinnsluaðferðir, samspil hráefna, aukefna og hjálparefni svo og vöruþróun. Mikil tengsl eru bæði við Rannsóknastofnanir atvinnu- veganna og fyrirtæki í matvæla- iðnaði. Fyrirhuguð bygging á rannsóknahúsi mun efla starfsem- ina á næstu árum. Rannsóknatengt framhaldsnám við verkfræðideild og raunvís- indadeild Háskóla íslands hefur valdið byltingu í grunnrannsókn- um og hagnýtum rannsóknum fyrir íslenskan matvælaiðnað. Nemendur taka eins til tveggja ára rannsóknaverkefni, oft í sam- starfi við rannsóknastofnanir at- vinnuveganna, fyrirtæki og er- lendar stofnanir eða háskóla. Við- FISKVINNSLA fangsefnin eru oftast um íslenskan veruleika og þróun en ekki um veruleika og þróun í þeim lönd- um sem nemendur dvöldu í hver- ju sinni áður en boðið var upp á framhaldsnám hér á landi. Verkefnavæðing og alþjóða- væðing rannsókna- og þróunar- starfs orðið til þess að mikil grós- ka er nú í matvælarannsóknum á ísandi. Rannsóknaráð Islands, Norræni Iðnþróunarsjóðurinn og sjóðir Evrópusambandsins hafa styrkt vel skilgreind og markviss samstarfsverkefni á Rannsókna- stofnunum atvinnuveganna. Velt- an hefur aukist. Starfsfólki hefur fjölgað. Tengsl við innlendar og erlendar stofnanir og skóla hafa aukist. Margir háskólamenntaðir starfsmenn matvælafyrirtækja hafa hlotið starfsþjálfún í slíkum verkefnum. Faglegar forsendur eru því mjög góðar til að efla framhalds- vinnslu á fiski á íslandi. Oðru máli getur gengt um rekstrar- og markaðsforsendur, sem hljóta að stjórna ákvörðunum fiskvinnslu- fyrirtækja og sölusamtaka þeirra um þróun á framhaldsvinnslu á fiski. Framhaldsvinnsla getur ver- ið mun flókari er vinnslan á hrá- vörunni. Stóru fyrirtækin hafa ekki sveigjanleika til tilrauna- vinnslu eða framleiðslu á til- búnum neytendavörum. Slík vinnsla hefst oft í litlum fyr- irtækjum í áhætturekstri þar sem fagleg þekking er lögð til grund- vallar tilraunaframleiðslu. Arang- ur litlu fyrirtækjanna ræður svo framhaldinu. Hér gætu stjórn- völd, Nýsköpunarsjóður atvinnu- lífsins, aðrir atvinnuþróunarsjóðir og fyrirtæki tekið höndum saman um þróunarverkefni á ýmsum stöðum á landinu. Hvaða grunnrannsóknir þarf til að styðja við framhaldsvinnslu á fiski? Kanna þarf vinnslueiginleika hrá- efnis úr fiski m.t.t. framleiðslu á mismunandi neytandavörum. Einnig þarf á rannsaka mjög ná- kvæmlega samspil hráefna, aukef- na og tæknilegra hjálparefna. Einnig þarf opnar rannsóknir og umræður um stjórnun á vatnsbú- skap, efnasamsetningu og fisk- magni í mismunandi vörum úr fiski. Við þurfum að vera leiðandi á þessu sviði til að geta haft áhrif á þær viðmiðunar- og vinnureglur sem verða settar. Þessar rannsókn- ir myndu leggja grunninn að þekkingu og ráðgjöf til að hægt verði að stunda framhaldsvinnslu á markvissan hátt og jafnvel með örlítið betri árangri en keppinaut- arnir. Ástæða er til bjartsýni á þróun framhalds- vinnslu í fiskiðnaði þegar Litið er á afskipti stórnvalda af uppbyggingu og þróun mennt- unar og rannsókna fyrir íslenskan matvæla- iðnað. Lokaorð Eg hef reynt að spá í þróun fram- haldsvinnslu á Islandi. Faglegar forsendur eru fyrir hendi. Þó þarf að efla fagmenntun og auka rann- sóknir. Tækifæri eru til að fara út í áhætturekstur og þróunarverk- efni. Hagkvæmni og markaður ráða því hvernig árangurinn verð- ur. Stjórnvöld geta haft áhrif á þessa þróun. Kannski byggist upp öflug framhaldsvinnsla á fiski á íslandi. Kannski fer fagfólkið og rannsóknafólkið til starfa hjá fyr- irtækjum í útlöndum. Einnig eru líkur á að sum þeirra vinni að þró- unarverkefnum í öðrum löndum. I stað afurða myndum við þá flytja út þekkingu og færni. o, ej m •-JjiB p w

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.