Ægir - 01.06.2000, Blaðsíða 37
passim). Eitthvað höfðu ártölin
skolast til í fyrstu útgáfunni, en
núna myndu vandamálin taka að
hrannast upp.
Hvenær lærum við?
Vöxtur, vöxtur, vöxtur
Þegar ein baktería er sett í glas
með gnótt næringarefna fjölgar
hún sér fljótlega. Gerum ráð fyrir
að hún fjölgi sér (tvöfaldist) á
klukkutíma fresti. Að klukku-
tíma liðnum eru bakteríurnar
tvær, eftir tvo tíma 4, síðan 8, 16,
32 o.s.frv. Þetta er veldisvöxtur -
tvöföldun á tímaeiningu.
Veldisvöxtur er „áhyggjuhrá-
efni“ heimsendaspámanna. I
bókinni Handan takmarkanna sjá
höfundar fram á að olíulindir
þverri árið 2031 og gasið verði
uppurið um 2050. Það er hugsan-
lega hægt að slá óþægindunum
örlítið á frest, en gasnotkun eykst
um 3,5% á ári, þ.e. hún tvöfaldast
á tuttugu árum (Meadows er al.
1992:74). Vegna þessa þarf á tutt-
ugu ára fresti að finna nákvæm-
lega jafn mikið gas og alls hefur
verið notað áður. Sagt er: „Þetta
er eðli veldisvaxtar."
Jörðin er hnöttótt
Jörðin er hnöttótt og þess vegna
eru auðlindirnar takmarkaðar.
Þetta er auðskilin röksemda-
færsla. Það eyðist sem af er tekið.
Ef við notum hráefni, verður
minna eftir að ári liðnu og fyrr eða
síðar ganga þau til þurrðar.
Með hugtökunum veldisvöxtur
og takmarkaðar auðlindir getum
við búið til okkar eigin heims-
endaspá. Veldisvöxtur þýðir að
eftirspurnin eykst sífellt meir,
framboðið ræðst hins vegar af
auðlindum, sem eru takmarkaðar
og geta ekki vaxið líkt og eftir-
spurnin.
Kjarni vandans
Árið 1865 skrifaði Stanley Jevons,
UMHVER FISMÁL
sem þá var einn af fremstu vís-
indamönnum Evrópu, bók um
kolanotkun í Englandi. Hann
taldi vandan felast í því að eftir-
spurn eftir kolum óx veldisvexti.
Brátt mundi „enskur iðnaður
stöðvast" vegna orkuskorts. En
það sem hann kom ekki auga á var
að í kjölfar hækkandi verðs á kol-
um jókst áhuginn á betri nýtingu
kolanna, leitað var nýrra kola-
náma, og jafnframt leiða til nýt-
ingar annarra orkulinda eins og
t.d. olíu (Simon 1996:164-5).
Kreppa Jevons skall aldrei á.
Svo er nýsköpun mannsins fýrir
að þakka að hægt er að nýta hrá-
efni betur, sem og nýjar upp-
sprettur. Vitaskuld er jörðin
hnöttótt og ekki óendanleg, en
það er ekki kjarni málsins. Vand-
inn er frekar hversu miklar nýtan-
legar hráefnabirgðir eru til. Þær
birgðir virðast takmarkaðar, en
hækki verð hráefnis eykst jafn-
framt áhugi á að finna fleiri nýt-
PALFINGGR jSPsMal
ÖRYGGI - AFL - ENDING
Hágæða lahkvinna
Danfoss kristur
Ryðfríar lagnir
Ryðfríir boltar >
Ryðfrí tcngi
f HágæðaJ
sjókranar
sem reynst hafa frábærlega
^ÚsÁnm/
SHMfamnséÁncMstoþtuM/
UÍ Áamin^fAJ/ meÁ nýjœ/
fiu^umnséÁnaAsÁifzící'
sem/ útAúið/ ex/ 5
<zPalfjnyeA/ (zAénum/.
StaA^sjélÁ/ sAt
b mrm
Atlas
Borgartúni 24,105 Reykjavík
Sími: 562 1155, Fax: 561 6894
Aðalvélar
Bógskrúfur
Lensiskiljur
3eitningavélar
Skrúfubúnaður
Skipakranar
Ljósavélar
Bílkranar
Ræsiloftspressur
Togvindur
Vindustjórnkerfi
Lensidælur
Sjódælur
Snigildælur
Olíudælur
Gírar
Varahlutir
Skipaviðgerðir
Þjónusta
Ráðgjöf