Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Síða 16
14
Þá óskaði liáskólaráðið eftir því, að settur yrði háskóla-
bókavörður með 6000 kr. launum til umsjónar með bóka-
safni háskólans. Var þetta tekið upp í fjárlagafrumvarp
stjórnarinnar, en fellt niður á Alþingi.
Háskólaráðið mælti með umsókn dr. Símonar Jóh. Ágústs-
sonar um fjárstyrk til þess að halda uppi kennslu þeirri í
uppeldisfræði fyrir kennara, sem liann hóf í háskólanum
þenna vetur.
Fyrirlestrar við háskólann. Háskólaráðið bauð rektor
Stokkhólms-háskóla, próf. Sven Tunberg, að koma hingað
til fyrirlestrahalds, en vegna ófriðarins gat hann ekki þegið
hoðið. Ekki voru heldur sendir neinir gestir til fyrirlestra-
halds frá Danmörku, eins og tíðkazt hefir nú i mörg ár.
Háskólaráðið bauð sendiherra Dana á Islandi, Fr. le Sage de
Fontenay, þýzka aðalræðismanninum, próf. W. Gerlach, og
frakkneska ræðismanninum, M. Henri Voillery, að flytja
fvrirlestra við háskólann. Flutti Fontenay sendiherra 6
fyrirlestra um uppruna og áihrif Múhameðstrúar í lok fyrra
misseris og í upphafi síðara misseris. Fyrirlestrarnir voru
fluttir á dönsku, en síðan gefnir út i bókarformi í íslenzkri
þýðingu. Voillery ræðismaður flutti 5 fyrirlestra á frönsku
um Frakkland handan við liöfin í lok fyrra misseris og í
byrjun síðara misseris. Ekkert varð úr fvrirlestrahaldi Ger-
lachs aðalræðismanns, sem ráðgert hafði verið. — Doktor-
arnir Einar Ól. Sveinsson og Símon Jóh. Ágústsson fluttu
fyrirlestra við háskólann, eins og nánar er greint í VI. kafla.
Erlendir háskólar og stofnanir. Háskólinn í Philadelphia
bauð Háskóla íslands að senda fulltrúa á 200 ára afmælis-
hátíð sina, er lialdin verður 20. og' 21. sept. 1940. Háskólinn
þakkaði hoðið og fól próf. Haltdóri Hermannssyni i Itliaca
að koma þar fram fyrir sína hönd, og tók próf. Halldór það
fúslega að sér. Þá harst háskólanum tilkynning frá Fordham
Vniversity í New York þess efnis, að sá háskóli mundi á ár-
inu 1941 lialda liátíðlegt 100 ára afmæli sitt og siðar bjóða
gestum á þá hátið.