Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Síða 21
19
stofnunar háskóla, þegar það mál kæmist í framkvæmd. Há-
skólaráðið samþykkti á fundi 29. sept. 1939 að verja sjóðn-
u m til háskólabyggingarinnar og leggja liann í byggingar-
sjóðinn, sbr. reikning sjóðsins hér á eftir í XIII. kafla.
■: ' k, !;■ !iji'
Lánssjóður stúdenta. 4. marz 1940 féll í gjalddaga 5000 kr.
lán, sem sjóðnum liafði verið veitt fyrir 10 árum úr Próf-
gjaldasjóði. Samþykkt var að framlengja lánið um önnur 10
ár, vaxtalaust eins og áður.
Endurskoðendur háskólareikninga voru kosnir prófessor-
arnir Jón Hj. Sigurðsson og Ólafur Lárusson.
Minningarsjóður Davíðs Scheving Thorsteinssonar. Þor-
steinn Scheving Tliorsteinsson ljTsali i Reykjavík gaf
með hréfi 28. marz 1940 stúdentagarðinum 5000 kr., og'
keypti með því herbergi í garðinum til minningar um föður
sinn, Davíð Scheving Thorsteinsson héraðslækni. Jafnframt
stofnaði hann sjóð, Minningarsjóð Davíðs Scheving Thor-
steinssonar, með 6000 kr. höfuðstól, er vera skal í vörzlum
háskólans, en vöxtunum skal verja til þess að greiða húsa-
leigu fyrir stúdent þann, sem býr í fyrrnefndu herbergi í
stúdentagarðinum. Skipulagsskrá sjóðsins er prentuð á bls. 118.
Skrá um rit háskólakennara 1911—1940. I tilefni af vígslu
liáskólabyggingarinnar samþykkti liáskólaráð að gefa út
sem fylgiri t með árhók 1939—40 skrá um rit háskólakenn-
ara 1911—1940. í skrána skyldi tekið: rit og þýðingar á
þeim, ritgerðir, ritdómar, einkum í tímaritum, útgáfur og
litgáfustjórn, ritstjórn hlaða og tímarita, þýðingar rita, skáld-
skapur, ræður, eftirmæli i tímaritum og árbók háskólans. Að-
eins skvldi geta um þau rit, sem komið hafa á prent eða verið
fjölrituð, og einungis þau, sem út hafa komið, meðan höf-
undurinn var starfandi kennari við háskólann. Var um leið
gert ráð fyrir, að samskonar skrá yrði gefin út á nokkurra
ára (t. d. 5 ára) fresti hér eftir. Fjdgirit þetta kom út á