Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Page 22
20
vígsludag háskólabyggingarinnar, 17. júní. Sama daga var
gefið út hefti á myndapappír með 9 myndum af háskólanum
nýja og öðrum byggingum, sem tengdar eru háskólanum.
Læknisskoðun stúdenta, Undanfarin ár hafa nokkur brögð
verið að því, að sumir stúdentar, sem samkvæmt háskóla-
reglugerðinni eru skyldir til að ganga undir læknisskoðun,
hafa vanrækt þessa skyldu. Háskólaráðið vill ganga ríkt
eftir, að stúdentar mæti til læknisskoðunar, þeir sem til þess
eru skyldir, og samþykkti, að þeir stúdentar, sem van-
ræktu þetta, skyldu eklci koma til greina við úthlutun styrks
og ekki fá leyfi til þess að ganga undir próf við háskólann.
Námsleyfi. Háskólaráðið veitti þýzkum stúdent, Werner
Kirsch, leyfi til skrásetningar.
Reglugerð fyrir stúdentagarðinn. Stúdentaráðið sendi há-
skólaráði frumvarp til reglugerðar fyrir stúdentagarðinn,
er komi í staðinn fyrir bráðabirgðareglugerðina frá 1934.
Háskólaráðið samþykkti frumvarp þetta óbreytt á fundi 22.
des. 1939. Reglugerðin er prentuð á hls. 112.
Skrásetning stúdenta. Háskólaráðið samþykkti á fundi 9.
sept. 1939 að framfylgja ákvæði 18. greinar háskólareglugerð-
arinnar, sem mælir svo fyrir, að stúdentar skuii æskja skrá-
setningar fj'rir byrjun hvers háskólamisseris. Þó var gefin
sú undanþága á því hausti, að stúdentar mættu skrásetjast
til 30. september.
Herdísarvík. Áhúandi Herdísarvíkur, frú Hlín Johnson, gaf
með bréfi dags. 15. febrúar 1940 háskólanum liús þau og
mannvirki, sem liún hefir látið gera þar: fjárhús fyrir 70
fjár, ishús 10 X 30 álnir, girðingu um túnið (um 1100 m),
girðingu á austurmörkum jarðarinnar (um 1500 m, að nokkru
leyti eign mæðiveikinefndar), sjóvarnargarð (um 120 m)