Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Síða 23
21
og girðingu þá, sem fyrirhuguð er á vesturmörkum jarðar-
innar (5—6 km). Háskólaráðið liafði gefið ábúandanum
leyfi til þess að veðsetja jörðina fyrir 5000 kr. veðdeildar-
láni, til þess að koma upp síðastnefndri girðingu, en ábúandi
skyldi standa straum af láninu. Var girðingarefnið allt kom-
ið til Herdísarvíkur, þegar g'jafabréfið var gert, en girðingin
ekki komin upp.
Silkifáni. íslendingafélagið í Chicago (formaður Árni
Helgason verksmiðjueigandi) sendi háskólanum að gjöf ís-
lenzkan fána úr silki, 4 m. langan.
Klukka. Wilhelm Jörgensen, úrsmíðameistari í Kaupmanna-
höfn, sendi háskólanum að gjöf klukku, forkunnarfagran
grip frá 18. öld (svokölluð Boulle-klukka).
IV. KENNARAR HÁSKÓLANS
í guðfræðisdeiid:
Prófessor dr. theol. Magnús Jónsson, prófessor Ásmund-
ur Guðmundsson og dósent Sigurður Einarsson. Auka-
kennarar: 1 grísku Krisiinn Ármannsson yfirkennari, söng-
kennari Sigurður Birkis og Páll ísólfsson orgelleikari.
I læknadeild:
Prófessor Guðmundur Thoroddsen, prófessor Níels Dungal,
prófessor Jón Hj. Sigurðsson og prófessor Jón Steffensen.
Aukakennarar: Ólafur Þorsteinsson, háls-, nef- og eyrna-
læknir, Kjartan Ólafsson augnlæknir, Trausti Ölafsson efna-
fræðingur, Júlíus Sigurjónsson læknir og Kristinn Stefánsson
læknir.
í lagadeild:
Prófessor Ólafur Lárusson, prófessor Bjarni Benediktsson,
prófessor Isleifur Árnason og aukakennarar cand. jur. Björn
Árnason og Sverrir í>orbjarnarson hagfræðingur.
2’