Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Page 42
40
Leiðrétting við Árbók 1938—39, bls. 32 (próf i Guðfræðisdeild):
Einkunnirnar í dálknum prédikun eiga við barnaspurningar, og
einkunnirnar undir barnaspurningar eiga við prédikun.
Læknadeildin.
I. Upphafspróf (efnafræði).
3 stúdentar luku því prófi í lok fj'rra misseris og 9 i lok
síðara misseris.
II. Fyrsti hluti emhættisprófs.
2 stúdentar luku því prófi í lok fyrra misseris og 7 í lok
siðara misseris.
III. Annar hluti embættisprófs.
3 stúdentar luku þvi prófi í lok síðara misseris.
IV. Þriðji hluti embættisprófs.
I lok fyrra misseris lauk 1 kandídat þriðja hluta embættis-
prófs.
Skriflega prófið fór fram 9., 11. og 13. janúar.
Verkefni voru þessi:
I. I lyflæknisfræði: Meningitis tuberculosea: einkenni, að-
greining, meðferð.
II. I handlæknisfræði: Hvað er kviðslit? Lýsið belztu
complicationum við kviðslit, einkenni þeirra, greiningu
og meðferð.
III. 1 réttarlæknisfræði: Lýsið slysum af rafmagni, orsök-
um, einkennum og afleiðingum.
Prófinu var lokið 27. janúar.
I lok síðara misseris luku 6 kandídatar þriðja hluta em-
bættisprófs.
Skriflega j)rófið fór fram dagana 6., 9. og 10. maí.
Verkefni voru þessi:
I. í lyflæknisfræði: 1) Lýsið aðaleinkennum rententions-
uraemi (uraemia vera, azytom. uraemi). Teljið upp
sjúkdóma, sem valdið geta þessu ástandi. Aðgreining.
2) Hæsi. Teljið stuttlega upp aðalástæður þessa ein-
kennis.