Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Síða 49
47
einkum skólahús, spítalar, embætlisbústaðir, kirkjur og
margskonar hús fýrir ríki og bæjarfélög, þ. á. m. landspítal-
inn, kaþólska kirkjan, þjóðleikhúsið.
IX. VÍGSLA HÁSKÓLABYGGINGARINNAR
fór fram mánudaginn 17. júní 1940, en daginn áður hafði
háskólakapellan verið vígð. Þegar stríðið skall á 1. sept. 1939
var hyggingarnefnd í mildum vanda stödd, því að þá var
byggingunni ekki svo langt komið, að horfur væru á, að
lienni vrði lokið fyrr en 1941 eða 1942, enda þá fyrirsjáan-
legt, að kostnaður yrði miklu meiri en u])phaflega var gert
ráð fyrir. Var það einróma álit hygginganefndar að hraða
verkinu sem mest, en þetta var ekki unnt nema stórlán yrði
tekin og sérle>rfi háskólans til að reka happdrætti til fjár-
öflunar yrði framlengt til 1946. Hvorttveggja heppnaðist, og
veitti Alþingi 1940 hið umheðna leyfi, og lán þau voru tekin,
er nauðsynleg voru til að fullgera verkið. Var þá sú ákvörðun
tekin í aprílmánuði, að vígslan skvldi fram fara á stofndegi
háskólans, 17. júní. Hafði byggingarnefnd þá starfað í fimm
ár og haldið 100 fundi, en siðasti fundur nefndarinnar var
haldinn skömrnu eftir vígsluna eða 26. júní.
Boðsbréf.
Eins og venja er til við slík tækifæri, var erlendum há-
skólum, stofnunum og nokkrum fræðimönnum hoðið að
vera viðstaddir vígsluna eða senda fulltrúa. Slík boð voru
send til milli 40 og 50 erlendra háskóla í Evrópu og' Ame-
ríku, en boðsbréfið var á íslenzku og latínu og hljóðaði
þannig:
Háskóli íslands.
Iiáskóli íslands, er stofnaður var 17. júní 1911, á 100 ára
afmæli þjóðhetjunnar Jóns Sigurðssonar, hefir nú eftir 29
ára starf eignazt nýja veglega byggingu, er verða mun fram-
tiðarheimkvnni liáskólans, og verður þessi bygging tekin til
afnota og vígð liátíðlega næstkomandi 17. júní. Hefst þá nýr