Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Page 51
49
Vígsla kapellunnar.
Sunnudaginn 16. júní kl. 2 fór fram vígsla kapellunnar og
framkvæmdu hana í sameiningu biskup landsins, herra Sig-
urgeir Sigurðsson, og forseti guðfræðisdeildar, próf. dr.
tlieol. Magnús Jónsson. Var margt manna hoðið til vigsl-
unnar, einkum prestum og frúm þeirra, og var kapellan
fullskipuð.
Atliöfnin liófst með því, að þegar gestir voru komnir til
sæta, gengu inn i kapelluna fremst forsætisráðherra Her-
mann Jónasson og rektor Háskólans, dr. Alexander Jóliann-
esson, en á eftir kom skrúðganga presta hempuklæddra, með
dr. Jón Helgason biskup í fararbroddi. En þegar þeir voru
komnir inn, kom skrúðganga þeirra, er vígsluna önnuðust.
Gengu þar fyrst tveir prestar sem famuli eða biskups-
sveinar, þá biskupinn, herra Sigurgeir Sigurðsson, í biskups-
skrúða og forseti guðfræðideildar, dr. Magnús Jónsson, í full-
um prestsskrúða, þá prófessor Ásmundur Guðmundsson, og
siðan fjórir prestar, þeir síra Bjarni Jónsson vigslubiskup,
síra Friðrik Hallgrímsson prófastur, síra Sigurður Einars-
son docent og síra Árni Sigurðsson fríkirkjuprestur, allir
skrýddir rikkilínum. Báru þeir ornamenta et instrumenta
kapellunnar: Biblíu, kaleik, patínu, belgisiðabók og sálma-
bók. Gengu þeir þegar fyrir altari, biskup og forseti guð-
fræðisdeildar, og tóku við kirkjugripunum og létu þá á altarið,
en prófessor Ásmundur Guðmundsson tók sæti við altaris-
liorn. Hinir fjórir prestarnir tóku sæti á stólum fyrir fram-
an prédikunarstól og skrúðhús. Á meðan var leikið á orgelið
af Páli ísólfssyni.
Hófst þá guðsþjónustan með því, að síra Garðar Svavarsson
las bæn í kórdyrum, en því næst söng dómkirkjukórinn undir
stjórn Páls ísólfssonar sálminn: Ó, syng þínum drottni. Þá
flutti biskup vígsluræðu út af Matt. 5,n—ig. Þá lásu þeir síra
Sigurður Einarsson, síra Árni Sigurðsson, síra Bjarni Jóns-
son, síra Friðrik Hallgrímsson (fjrrst sá yngsti og svo áfram)
ritningarkafla þá, er til þess eru ætlaðir í helgisiðabókinni,
4