Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Síða 53
51
Heimsókn íþróttamanna.
Klukkan rúmlega 2 tóku geslir, ríkisstjórn og alþingis-
menn, fulltrúar erlendra ríkja, prófessorar, háskólastudentar
og aðrir gestir að safnast saman. íslenzkir fánar blöktu við
hún fyrir anddyri háskólans og við veginn sem þangað
liggur frá Hringbraut. Lúðrasveit lék ættjarðarlög á tröpp-
um hússins. Kl. 2,25 gengu fylkingar íþróttamanna i íþrótta-
húningum undir fánum fram fyrir háskólann, um 350
manns, en prófessorar með rektor i hroddi fvlkingar gengu
fram á tröppur liússins.
Ræða forseta /. S. /., Benedikts G. Waages.
Þá flutti forseti íþróttasambands íslands, Benedikt G.
Waage, háskólanum árnaðarorð íþróttamanna og mælti á
þessa leið:
Hæstvirti liáskólarektor!
Virðulega liáskólaráð!
í nafni íþróttasambands íslands og íslenzkra iþrótta-
manna leyfi ég mér að óska Háskóla íslands lil heilla með
hin nýju heimkynni, um leið og vér íþróttamenn þökkum
háskólanum fyrir vísindastörfin og fyrir þá sönnu menntun,
sem hann hefir veitt emhættismönnum þjóðar vorrar og
mennta- og fræðimönnum í nær þrjá áratugi.
Nýkomnir frá leiði Jóns Sigurðssonar alþingisforseta
minnumst vér þess, að það var hann, sem fvrstur kom fram
með hugmyndina að stofnun þjóðskóla fvrir íslendinga. Vér
viljum vænta þess, að íþróttamenn þjóðarinnar megi, er
fram líða stundir, eiga silt höfuðvígi hér i Háskóla íslands,
þessu æðsta menntasetri þjóðarinnar. Að þar verði líkams-
íþróttir kenndar á vísindalegan hátt; enda mun það sannar-
lega vera i anda Jóns Sigurðssonar, þessa mesta afreksmanns
vors og frelsishetju að fornu og nýju. Hér á þjóðin að fá
alla sína fullkomnustu menntun, hæði andlega og líkamlega,
og vér tökum undir með listaskáldinu góða, sem komizt
hefir svo snilldarlega að orði, er hann segir: