Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Side 91
89
spjallamannanna fjögra, eftir Ásmund Sveinsson mynd-
höggvara. Er bæði skrúðhús og prédikunarstóll úr sams-
konar hellum og altarið.
Á altarinu eru nú: Krossmark, fagurlega skorið af Ágúsl
Sigurmundssyni, er prófessor Guðbrandur Jónsson gaf
kapellunni, silfurkaleikur og patína, er Jónatan gullsmiður
Jónsson liefir smiðað. Var kaleikurinn gefinn prófessor
Magnúsi Jónssyni af nemendum lians á fimmtugsafmæli
hans, en hann gaf kapellunni hann á vígsudegi hennar. Þá
er þar biblía, sem fjölmargir nemendur jirófessors Haralds
Níelssonar gáfu honum, en liún var nú gefin kapellu há-
skólans af Haraldi, syni Sveins M. Sveinssonar og frú Soffíu
Haraldsdóttur. En honum hafði hún verið ánöfnuð af frú
Aðalbjörgu Sigurðardóttur. Enn er þar helgisiðabók pró-
fessors Sigurðar P. Sívertsen, gefin af dóttur hans frú Stein-
unni og manni hennar, Gústav A. Jónassyni skrifstofustjóra,
og Helga Sívertsen forstjóra,
Yfir anddyri kapellunnar er orgelpallur, og kemur þar
pipuorgel, er Isólfur Pálsson bvggir. Undir orgelpalli er löng
lágmynd eftir Ásmund Sveinsson með fornkirkjulegum
táknmyndum. Gluggar eru allir með lituðu gleri og eru
táknmyndir í sunium í rúðum. Kapellan er máluð í hláum
lit, er dvínar eftir þvi, sem ofar kemur, og gefur húsinu
einkennilegan svip og rými. Máluðu Iiana þeir Ósvaldur
Knudsen og Daníel Þorkelsson. Bekkir eru úr skvggðum
ahorn, livítir, og eru smíðaðir af Hjálmari Þorsteinssyni.
Messingstjakar á altari eru gerðir af Kristni Péturssyni blikk-
smið eftir uppdrætti húsameistara, dr. Guðjóns Samúels-
sonar prófessors, sem ráðið hefir gerð kapellunnar allrar
eins og hússins yfirleitt.
Hér á eftir verða talin upp nöfn þeirra manna, sem tekið
iiafa að sér verk þau, er unnin hafa verið við bygginguna,
og hvað hver þeirra Iiefir annazt:
Kjallarasteypu: Diðrik Helgason, múrarameistari.
Steypu ofan kjallara: Sigurður Jónsson, múrarameistari
og Einar Kristjánsson, húsasjníðameistari.