Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Side 113
111
skrár yfir nám og námsskilyrði í ýmsum greinum, er stunda má
hér á landi að nokkru eða öllu leyti.
Eftir beiðni kennslumálaráðuneytisins hefir skrifstofan unnið að
söfnun itarlegra skýrslna um nám og námskostnað allra ísh náms-
manna og kvenna erlendis. Hafa skýrslur þessar verið hafðar til
hliðsjónar við úthlutun gjaldeyris lil náms ytra.
Fyrir atbeina skrifstofunnar samþykkti Bergenska gufuskipafélagið
að veita islenzkum námsmönnum, sem ferðast með skipum félagsins
til eða frá námi í Noregi, 25% afslátt á fargjöldum.
Eimskipafélag íslands samþykkti einnig að veita stúdentum veru-
legan afslátt á fargjöldum með skipum félagsins milli Ameríku og
íslands.
Eins og undanfarið annaðist skriftsofan stúdentaskipti við Þýzka-
land.
Þá aðstoðaði hún stúdenta við útvegun kennslustarfa og annarar
vinnu.
Fram til þessa hefir skrifstofan jafnan haft mjög óhentugt húsnæði,
en nú hefir verið úr því bætt, jíar sem hún hefir fengið gott húsnæði
á Amtmannsstig 1.
StúdentagarSurimi. Á árinu var Garðstjórn afhentur fjárstyrkur að
upphæð kr. 500.00, sem ráðið hafði árið áður samþykkt að verja til
húsgagnakaupa í samkomusal Garðs, og auk þess lán að upphæð
lcr. 1000.00, veitt til 10 ára í sama tilgangi. Er nú að fullu lokið
smíði jsessara húsgagna. Ennfremur veitti ráðið stúdentagarðin-
um bráðabirgðalán að upphæð kr. 2500.00, til greiðslu aðkallandi
skulda.
Snemma á vetrinum samþykkti ráðið reglugerð fyrir stúdenta-
garðinn, með ým'sum breytingum og viðaukum, sem Garðstjórn hafði
samþykkt, og komnar voru flestar frá fulltrúum stúdenta í stjórn-
inni. Fram til þessa hafði stúdentaráðið ekki viljað fallast á reglu-
gerð þá, sem Garðstjórn hafði samið, vegna ákvæðis i lögum Garðs-
ins um skipun Garðstjórnar. Hafði reglugerðin því í raun réttri ekki
haft fullt gildi hingað til.
Sumarið 1940 var stúdentagarðurinn tekinn til afnota fyrir hrezka
setuliðið hér á landi. Þrátt fyrir gefin loforð sáu brezku hernaðar-
yfirvöldin sér eigi fært að rýma Garð í byrjun starfsársins. Komu
ítrekaðar tilraunir Garðstjórnar til ])ess að fá þessu breytt að engu
haldi. Þegar er vitað var um ákvörðun þessa, hófst ráðið í samvinnu
við Garðstjórn handa um að aðstoða stúdenta við útvegun húsnæðis,
þar eð fyrirsjáanleg var mikil húsnæðisekla hér í bænum. M. a. fór
ráðið þess á leit við háskólaráð, að stúdentar fengju herbergi til
íbúðar á efstu hæð háskólans, en það sá sér eigi fært að verða við