Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Page 115
113
3. gr. —• Slúdentar þeir, er stjórn garðsins veitir garðvist, fá til
eigin afnota herbergi með húsgögnum, ásamt ljósi, hita og ræstingu.
Ennfremur hafa þeir sameiginleg afnot af lestrarsal, íþróttasal, borð-
sal, böðum og geymslu, innan þeirra takmarka, er garðstjórn setur.
Fyrir þetta greiða þeir ákveðið gjald á mánuði, og skal það auglýst
fyrirfram fyrir hvert starfsár. Krafist er tryggingar fyrir skilvisri
greiðslu. Heimilt er garðstjórn að láta einstökum stúdentum ókeypis
garðvist í lé, ef hún sér sér fært og sérstakar ástæður eru fyrir hendi.
Garðstjórn sér um, að þeir stúdentar, sem þess óska, geti keypt
ákveðnu verði fullt fæði, eða einstakar máltiðir, og þjónustu á garð-
inum. Þessu síðasta atriði getur garðstjórn þó breytt, ef annað þykir
betur henta.
4. gr. — Afnotagjald herbergja greiðist fyrirfram fyrir 4 mánuði i
einu. Greiðsla fyrir þjónustu og fjárreiða mötuneytis er garðstjórn
með öllu óviðkomandi, nema liún kjósi sér þar íhlutunarrétt.
5. gr. — Prófastur úthlutar herbergjum í samráði við garðstjórn,
og skal hlutkesti ráða, ef vafi leikur á forréttindum. Til herbergja-
skipta þarf leyfi prófasts. Prófasti ber að sjá um, að herbergi séu í
góðu standi, er stúdent flytur inn í það, enda gefi stúdent skriflega
viðurkenningu fyrir, að svo sé.
6. gr. -— Húsgögn þau, er tilheyra lierbergjunum, innanstokksmuni
garðsins, má ei flytja þaðan án leyfis prófasts eða inspectors domus.
Samskonar leyfi þurfa garðbúar til þess að flytja eigin húsgögn í
lierbergi sín.
7. gr. — Skemmdir á lierbergjum eða liúsgögnum garðsins ber að
tilkynna inspector dornus, og sér hann um viðgerðir. Viðgerðina
greiðir garðbúi eða garðbúar þeir, sem hlut eiga að máli, nema stjórn
garðsins sleppi tiikalli til greiðslu, að fengnum tillögum prófasts.
Spellvirki geta varðað brottrekstri.
8. gr. — Ræsting herbergja fer fram á tímabilinu frá kl. 8 til 12
fyrir hádegi.
9. gr. — í engu herbergi garðbúa mega búa aðrir en þeir, sem
prófastur hefir ákveðið.
10. gr. — Fari garðbúi burt af garðinum lengur en sólarhring, skal
hann tilkynna jiað inspector domus og afhenda honuin lykil her-
bergis síns; en leyfi prófasts þarf til, ef um viku fjarveru er að
ræða eða lengri.
11. gr. — Garðbúum er skylt að slökkva ljós í herbergjum sinum
í hvert sinn, er þeir fara út úr þeim á ljósatíma. Sömuleiðis skulu
þeir slökkva ljós i öðrum herbergjum, er þeir nota siðastir. Enn-
fremur skulu þeir slökkva ljós, er þeir sjá brenna að óþörfu.
Ljós skulu vera slökkt á göngum og öðrum sameiginlegum vistar-
8