Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Qupperneq 116
114
verum garðsins kl. 11 aS ltvöldi, að næturljósum undanteknum, nema
prófastur veiti undanþágu.
12. gr. — Baðherbergi garðsins mega aðeins garðbúar nota, og það
eftir nánari reglum. Undanskilið þessu er íþróttabaðið, ef til kemur,
enda má þá taka gjald fyrir afnotin.
13. gr. — Garðurinn er opnaður kl. 7,30 að morgni starfstimann, og
læst kl. 11 á kvöldin. Frá kl. 11 að kvöldi til kl. 7,30 að morgni hefir
dyravörður vörzlu, og má engum lileypa inn öðrum en garðbúum.
14. gr. — Garðbúar skulu vandlega gæta þess, að raska ekki starfs-
og svefnfriði hver annars. Söngur, hljóðfærasláttur og útvarp má
ekki, án sérstaks leyfis prófasts, fara fram annars staðar á garðinum
en í lestrarsal og ekki á öðrum tímum en frá kl. 12 til kl. 1 miðdegis
og kl. 7 til kl. 11 á kvöldin, að laugardags- og sunnudagskvöldum
undanteknum, en þá má balda áfram til miðnættis. Hurðaskelli, hlaup
og hávær samtöl á göngum og annað þessliáttar ber stranglega að
varast. Skulu vistaverðir og inspector domus gæta þess vandlega, að
þessu sé hlýtt, og tilkynna prófasti og garðstjórn, ef útaf er brugðið.
Utangarðsbúum, sem truflunum valda, skulu umsjónarmenn tafarlaust
vísa á dyr.
15. gr. —• Allar kvartanir garðbúa komi til prófasts eða garðstjórnar
fyrir milligöngu inspectors domus.
10. gr. — Enginn stúdent má búa á garðinum lengur en bann
stundar nám við Háskóla íslands. Nú leikur vafi á þessu, og getur þá
garðstjórn leitað umsagnar viðkomandi deildarforseta. Stúdentum, sem
óska að flytja af garðinum á starfstímabilinu frá 15. september tii 1.
júní, er heimilt að segja herbergi sínu lausu frá 1. febrúar, með ekki
minna en mánaðar fyrirvara.
17. gr. — Garðbúa þá, sem brjóta þessa reglugerð eða aðrar reglur
eða fyrirmæli garðstjórnar, getur garðstjórn rekið burtu fyrirvaralaust.
Sömuleiðis getur bún vísað burtu þeim, er að liennar dómi reynast
ekki til þess bæfir, að búa á garðinuin, t. d. vegna vanrækslu á námi.
Aðvörun skal fara fram á undan brottrekstri, ef garðstjórn telur af-
sakanir vera fyrir hendi, annars eigi. Óblýðni og ókurteisi við stjórn
garðs, inspector domus og vistaverði eða dyravörð, sem eru að gegna
skyldu sinni, er brottrekstrarsök fyrirvaralaust.
18. gr. — Við burtför ber garðbúa að skila herbergi sínu í sóma-
samlegu ástandi og bæta allar áorðnar skennndir á því og liúsgögnum
þess, er ekki teljast orsakast af venjulegu sliti.
19. gr. — Pólitíska flokksbúninga eða flokksfána má ekki bera inn-
an vébanda stúdentagarðsins.
20. gr. — Sameiginleg húsakynni garðbúa má ekki nota til annars
en þess, sein þau eru ætluð til, nema að fengnu leyfi prófasts.