Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Blaðsíða 119
117
1. ViSskiptaháskóli i 3 deildum ..................... kr. 9000.00
2. Verkfræðinám ....................................... — 7000.00
3. Náttúrufræði ....................................... — 6000.00
4. Hagfræðinám ........................................ — 2000.00
Samtals kr. 24000.00
Ad 2. í fyrra voru við verkfræðinám erlendis 45 stúdentar, og ef
gert er ráð fyrir 5 ára námi, myndi árleg viðbót vera 9 stúdentar
eða 18 stúdentar á 2 árum. Þessir stúdentar gætu flestir bætt við sig
einu ári á íslgndi, þvi að í flestum greinum verkfræðináms fer eitt ár
í verklega vinnu á verkstæðum við smiðar, vélgæzlu eða aðra vinnu.
Ad 3. Við nám í náttúrufræði og skyldum greinum voru i fyrra
17 stúdentar erlendis. Samsvarar það 3—4 nýjum stúdentum á ári, eða
6—8 á 2 árum.
Ad 4. í hagfræði voru við nám erlendis í fyrra 16 stúdentar, og
samsvarar það 4 á ári eða 8 á 2 árum.
Ef þessum undirbúningsdeildum yrði komið á, yrði stúdentafjöld-
inn í þessum nýju deildum að 2 árum liðnum:
30 í viðskiptadeild,
18—20 í verkfræði
6— 8 í náttúrufræði,
8 í hagfræði,
eða samtals nál. 65 stúdentar, og væri þá auðveldara að takmarka tölu
stúdenta i lagadeild og læknadeild allverulega.
Hagnaður við þetta fyrirkomulag væri:
1. Sparnaður á erlendum gjaldeyri nál. 130000.00 kr. árlega.
2. Efling háskólans, en það verður að telja skyldu hvers þjóðfélags, er
hefir sinn eigin háskóla, að veita stúdentum kennslu í öllum þeim
greinum, er þjóðfélaginu megi að gagni verða, ef þess er nokkur
kostur.
3. Margbreytni í námi, sem beinir nýjum stúdentum inn á fieiri brautir
en nú er kostur á.
Árlega útskrifast um 80 nýir stúdentar, og leita margir þeirra til
erlendra háskóla, þótt engan utanfararstyrk fái, ef aðstandendur þeirra
eru þess megnugir, og er því engin leið að hindra framhaldsnám þeirra
við liáskóla, enda verður það að teljast ógerlegt að stöðva framalöngun
ungra og efnilegra stúdenta.
Til þess að standast kostnað við hinar nýju deildir mætti verja þeim
20000.00 kr., sem nú eru á fjárlögum til viðskiptaháskóla, en gera má
ráð fyrir, að háskólinn gæti sjálfur lagt fram 4000.00 kr. úr almanaks-
sjóði til kennslu í eðlisfræði og stærðfræði.