Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1998, Side 92
Annað starfslið: Elín Ellertsdóttir líffræðingur. Finnbogi R. Þormóðsson sérfræð-
ingur. Fjóla Haraldsdóttir meinatæknir. Guðbjörg Bragadóttir ritari, Jóhann Arn-
finnsson líffræðingur, og Sigurlaug Aðalsteinsdóttir meinatæknir.
Starfsemi
Rannsóknastofa í líffærafræði sinnir vísindalegum rannsóknum í líffærafræði
heitbrigðra og sjúkra. Starfsmenn rannsóknastofunnar kenna líffærafræði og
veita ýmsum aðilum þjónustu í örsjárrannsóknum (electron microscopy). Á rann-
sóknastofunni er einnig framleitt kennsluefni í líffærafræði í formi prentaðs máls.
tölvuefnis og margvístegra sýna. Á árinu 1997 gengust starfsmenn Rannsókna-
stofu í líffærafræði fyrir stofnun námsvers í Læknagarði og á árinu 1998 var gert
sérstakt átak til tölvufærslu á námsefni í líffærafræði. aðalega í þeim titgangi að
auðvelda nemendum sjátfnám.
Vísindaleg viðfangsefni
Rannsóknir á æða- og vefjaskemmdum fótks sem látist hefur af völdum arfgeng-
rar heilablæðingar. en sjúkdómurinn finnst eingöngu á fslandi. hafa verið stund-
aðar í mörg ár á rannsóknastofunni. Á árinu 1998 tókst að einangra og rækta
sléttvöðvafrumur úr heilaæðum sjúklings með sjúkdóminn en með því var aflað
einstaks efniviðar til frekari og sértækari rannsókna á sjúkdómnum. Um aðra
þætti þessara rannsókna er samstarf við dr. Anders Grubb og samstarfsmenn
hans í Lundi í Svíþjóð.
Rannsókn á heilabilun (dementia) í samvinnu við deildir Landspítalans í ötdrunar-
lækningum og taugalækningum og öldrunardeitd Sjúkrahúss Reykjavíkur hefur
staðið í nokkur ár og mun standa áfram um óákveðinn tíma.
Rannsókn á taugakerfisæxlum. sem er bæði erfðafræðilegs, faratdsfræðilegs og
vefjameinafræðilegs eðtis, er í gangi og hefur þegar verið lokið við rannsókn á
einum ftokki æxta (heilamengisæxli: meningioma) og unnið er að rannsókn á öðr-
um flokki æxta (taugatróðsæxli: gliomata). Um þessar rannsóknir hefur verið
samstarf við meinafræðideild taugasjúkdómadeild Mayo Ctinic í Rochester
Minnesota frá árinu 1995.
Rannsókn á síþreytu og skyldum sjúkdómum í samvinnu við Erni Snorrason geð-
lækni hófst 1997 og er enn þá í gangi. Verkefnið er styrkt af lyfjafyrirtækinu Shire
og voru frumniðurstöður rannsóknanna kynntar fulltrúum fyrirtækisins á árinu og
hlaut verkefnið framhatdsstuðning.
Ritverk:
• Otafsson, I.H.. Thormodsson, F.R.. Hrafnsdottir. M.G.. and Blöndal, H. (1998)
Cerebrovascular muscte cetls in hereditary cystatin C amyloidosis. Erindi flutt á
IX. Northern Lights Neuroscience Symposium on Prion and Lentiviral Diseases
og útdráttur birtur í ráðstefnuskrá.
• Finnbogi R. Þormóðsson. Ingvar H. Ótafsson. Daði Þ. Vithjálmsson og Hannes
Blöndal (1998). Einangrun og ræktun sléttvöðvafrumna úr heitaæðum sjúklinga
með arfgenga heitabtæðingu. Læknablaðið. 84. árg., fytgirit 37. bls. 130.
Kennsla
Nemendur í læknisfræði. sjúkraþjálfun og tanntækningum fá kennslu í líffæra-
fræði við rannsóknastofuna. Nemendafjöldi er nokkuð breytilegur eftir árum en
var 1998 samtats 270 á 1. og 2. ári. Auk þess fá nemendur í meina- og röntgen-
tækni við Tækniskóla ístands kennstu í líffærafræði við rannsóknastofuna og
nemendur í meinatækni hljóta einnig verklega þjálfun í meinatækni á rannsókna-
stofunni.
Þjónusturannsóknir
Örsjárrannsóknir til sjúkdómsgreiningar eru fastur liður í starfsemi rannsókna-
stofunnar og eru þær aðaltega unnar fyrir Rannsóknastofu Háskótans í meina-
fræði við Barónsstíg. Einnig eru gerðar, og hafa verið gerðar síðan 1981. örsjár-
rannsóknir á lífrænum og ólífrænum sýnum fyrir aðrar stofnanir Háskótans og
aðila utan hans.
88