Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1998, Page 129
Tölvuver
[ Haga voru settar upp sérstakar nemendatölvur. Sett var upp nýtt tölvuver í Eir-
bergi. Tölvuverið er á 2. hæð þar sem tölvustofa var áður til húsa. í tölvuverinu
eru 12 PC-tötvur. Einnig er geislaprentari í tölvuverinu. Búið er að setja upp nýtt
tölvuver í Odda. Það er á 3. hæð þar sem bókasafn/lesstofa var áður til húsa. í
tölvuverinu eru 39 tölvur. þar af ein tölva fyrir kennara. Skjávarpi er í verinu.
Settar voru upp fimm tölvur í tölvustofuna á Vitastíg. Þessar tölvur samnýta
prentara á innanhúsneti. Forritin Word 97 og Excel 97 eru á tölvunum. Fyrir er ein
NT-tölva sem tengd er við Internetið. Gerðar voru gagngerar breytingará tölvu-
verinu í Árnagarði. Breytingarnar fela m.a. í sér minnisstækkun í tölvunum. upp-
færslu stýrikerfis (Windows NT) og endurnýjun notendahugbúnaðar til samræmis
við endurbætur í öðrum tölvuverum RHÍ.
Kerfismál
Ný fjölnotendatölva. Katla. af gerðinni Sun Ultra Enterprise 450 kom til Reikni-
stofnunar um mitt ár. Unnið var að uppsetningu hennar og var hún tekin í al-
menna notkun í ársbyrjun 1999. Hún kemur í stað Hengils sem skiptir um
hlutverk eftir dygga þjónustu í mörg ár. Katla er með 300 MHz ULTRASparc II
örgjörva, 1 Gb í vinnsluminni og 25Gb diskrými, þar sem allir diskar eru speglaðir.
Hún keyrir Solaris 2.6 stýrikerfi og er fyrsta tölvan frá Sun sem Reiknistofnun
býður notendum sínum afnot af en Reiknistofnun hefur langa reynslu af Sun-
vélum því að langflestar þjónustuvélar, t.d. allir netþjónar í tölvuverum. eru frá
Sun.
Skipt var um netþjón í VR-II og er nýi netþjónninn af gerðinni Sun Uttra Enterprise
150 eins og netþjónarnir í Odda, Læknagarði og Tæknigarði. Gamli netþjónninn úr
VR-II var hins vegar settur í Eirberg eftir uppfærslu á móðurborði hans. Einnig
var skipt um móðurborð í netþjóninum í Lögbergi en þessir tveir netþjónar eru af
gerðinni Sun SPARCstation 5. Þá varsettur netþjónn í Nýja-Garð og þjónar hann
m.a. máltölvuveri sem þar er. Þá var bætt við diskum í netþjónana og heitdar-
diskrými netþjóna í töivuverum stækkaði um tæp 50Gb.
Ný og öflug afritunarstöð var tekin í notkun í september. Hún er af gerðinni HP
SureStore 418 og getur tekið 8 DLT segulbönd en hægt er að skrifa um 20 GB á
hvert þeirra. Hún er notuð af afritunarkerfinu Amanda en það var uppfært á árinu
og unnið var að undirbúningi þess að bjóða afritun af vélum með Windows NT og
Windows 95/98.
Kerfisþróun fyrir stjórnsýslu skólans
Áframhaldandi þróun nemendakerfa H.í. og KHÍ. Gerðar voru þær breytingar í
UKSHÍ. upplýsingakerfi stjórnsýstu Háskóta ístands, að þar er nú hægt að geyma
námskeiðaupptýsingar og kennstuskrár H.í. Þannig er komin á tenging mitli
námskeiðaskrár nemendaskrár og námskeiðstýsinga í kennstuskrá H.í. Háskól-
inn tók til notkunar samskipta- og skjatastjórnunarkerfið GoPro frá Hugviti hf.
síðla árs. Uppsetning var í höndum Hugvits og RHÍ. Um áramótin tók Háskólinn í
notkun nýtt bókhatdskerfi. Þetta nýja kerfi heitir Navision Financials og er dansk-
rar ættar en aðlagað og uppsett af Streng hf. í samvinnu við RHÍ.
Upplýsingaþjónusta
Háskólans
Almennt yfirlit um stjórnun
Hjá Upplýsingaþjónustu Háskólans (UH) starfar forstöðumaður í fullu starfi og
ritari í 70% starfi. Auk þess hafa námsmenn verið í hlutastörfum við hugbúnaðar-
þróun og ýmsa aðstoð. einkum að sumartagi.
Rannsóknir og þróunarstarf
Megináherslan í störfum Upplýsingaþjónustunnar á árinu var á tvö verkefni:
• Námsnet Háskóla ístands (NNHÍ).
• Framleiðni í námi og fræðstu (FNF).
Um er að ræða tvö náskyld verkefni. Það fyrra hófst í febrúar 1997 og tagði UH á
það aðatáherslu það árið. Það seinna er hugsað að miktu leyti sem stuðningur við