Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 9

Stúdentablaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 9
Margir möguleikar í meistara- og doktorsnámi: Mikil gróska í framhalds Fyrir þá sem hugsa skipulega: Verkfræði Innan vcrkfræðideildar er hægt að taka eftirfarandi greinar til MS-prófs: Byggingarverkfræði, unihverfisverk- ffæði, vélaverkfræði, iðnaðarverkfræði, rafmagnsverkfræði, tölvuverkfræði, sjávarútvegsfræði og umhverfisfræði Nám til mcistaraprófs er 60 einingar hið minnsta. Hægt er að taka námskeið til 30 eða 45 cininga og meistaraverk- efni til 15 eða 30 cininga. Til að kom- ast inn í námið þarf að hafa lokið BS- prófi í verkffæði, raunvísindum eða sambærilegum greinum. Þeir sem koma úr öðrum deildum eða skólum eru hins vegar skyldaðir til að taka 45 einingar í námskeiðum og 15 eininga meistaraverkefni. Háskólans Margar leiðir standa háskólanemum til boða að loknu BA-prófi. Nemendur œttu að kynna sér hvað Háskóli íslandspetur boðið í þeim efnum en ífram- haldsnáminu kennir margra grasa, hvort sem um er að rœða hefðbundið meist- aranám eða starfstengt viðbótarnám. Kynningarfundur um framhaldsnáml Mikil áhersla hefur verið löjjð á að efla framhaldsnám í Háskólanum að undan- fórnu. Nú í vetur verður tekin upp sú nýbreytni að kynna framhaldsnám við Há- skólann á svipaðan hátt ojjprunnnámið er kynnt á hverju ári. Framhaldsnám- skynningin verður þann 8. mars ojj stendurfrá 16.00 til 19.00. Allar deildir skólans nema lajjadeild taka þátt í kynninjjunni og verður hún haldin í hátíðarsal Aðal- byggingar. Ennfremur verður kynning á þjónustu við framhaldsnema. Nemendur sem komnir eru áleiðis í námi og þeir sem hafa lokið háskólanámi &ttu að koma við og renna augum yftr flóruna. Ekki þarfað margítrekagildi menntunar í nútíman- um og Háskólinn hefur eflaust meira upp á að bjóða en margan rennirgrun í. Fyrir þá þverfagtegu: Umhverfis- og sjávarútvegsfræði Boðið er upp á 60 eininga þverdeilda- legt meistaranám í umhverfisfræði og sjávarútvegsfræði. Viðskipta- og hag- fræðidcild, raunvísindadeild, verkffæði- deild, lagadeild og félagsvísindadeild eiga aðild að báðum fbgum og að auki eiga heimspekideild og guðfræðideild aðild að umhverfisfræðinni. í umhverf- isfræði taka nemcndur 30 eininga kjarna, 15 eininga lokaverkefni og 15 einingar á sérsviði. 1 sjávarútvegsfræði taka nemendur 20 eininga kjarna, 15 eða 30 eininga lokavcrkcfni og svo val- fög til að fýlla upp í 60 einingar. Fyrir þá sem hugsa um fjármál: Viðskipta- og hagfræði Innan viðskipta- og hagfræðideildar er boðið upp á 45 eininga meistaranám í viðskipta- og hagfræði. Gert er ráð fýrir að nemendur hafi lokið BS-prófi í þessum greinum en þeir scm hafa lokið háskólaprófi í öðrum greinum geta sótt um skráningu í sérstakt undir- búningsnám með einstaklingsbundinni námsáædun. I’á er einnig boðið upp á MBA- nám í samvinnu við Endurmenntunarstofnun en það kostar drjúgan skilding. Fyrir þá sem hugsa um aðra: Hjúkrun, heilbrigðisvísindi og tannlæknisfræði Meistaranám í hjúkrunarfræði er 60 eininga nám. Inntökuskilyrði er BS-próf í hjúkrun- arfræði. Hluti námsins er tckinn í útlöndum. Hægt cr að taka námskeið til 30 eða 45 eininga og meistaraverkefni tíl 15 eða 30 eininga. Innan hjúkrunarfræðideildar er einnig hægt að taka cand.obst.-próf í ljósmóðurfræði (2 ár, 36 einingar). Hjúkrunarfræðingar sem ekki hafa lokið BS-prófi í hjúkrunarfræði þurfa að ljúka fornámi, alls 16 einingum, áður en nám í ljósmóðurfræði getur hafist. Námið er samfellt og hvert námskeið cr nauðsynleg undirstaða fýrir það næsta. Meistaranám í heilbrigðisvísindum er kennt innan læknadeildar. Námið er 60 eining- ar og geta þeir sótt um sem lokið hafa BS-prófi við læknadeild, fjórða ári í læknisfræði í læknadeild Háskóla Islands eða sambærilegu prófi. Innan tannlæknadcildar er hægt að taka meistaranám í tannlæknisfræði. Framkvæmd þess cr samkvæmt reglum læknadcildar. Fyrir þá sem hugsa um samfélagið: Félagsvísindi í félagsvísindadeild er hægt að fara í framhaldsnám í eftirfarandi fögum: Bókasafns- og upplýsingafræði, félagsfræði, mannfræði, sálarffæði, stjórnmálafræði og uppeldisfræði (2 brautir). Ætlast er til þcss að ncmendur hafi lokið BA-prófi ffá Háskóla íslands eða sambæri- legu prófi með fýrstu einkunn (7,25). Allt meistaranám í félagsvísindadeild er 60 ein- ingar og gert er ráð fýrir að það sé tekið á tveimur árum. Hægt er að taka hluta náms- ins í útíöndum. Meistaranám skiptist almennt í námskeið (15-30 einingar) og svo loka- ritgerð (30-45 ciningar). Við upphaf framhaldsnáms velja nemendur sér lciðbeinanda scm fýlgir þeim svo í gegnum námið. Fyrir þá sem hugsa í tölum: Raunvísindi í raunvísindadcild er hægt að fara í ffamhaldsnám í stærðffæði, eðlisfræði, jarðeðlisfræði, vísindasögu, efnafræði, lífcfnafræði, líffræði, jarðfræði, landaffæði, tölvunarffæði, mat- vælafræði, næringarfræði, sjávarútvegsfræði og umhverfisfræði. Nám til meistaraprófs í raunvísindadeild er 60 einingar nema MS-nám í tölvunarfræði sem er 45 einingar. Til að fá að innritast í meistaranám þarf stúdent að hafa lokið BS- prófi frá deildinni með lágmarkseinkunn 6,5 eða sambærilegu prófi. Við upphaf náms- ins velja nemendur sér lciðbeinanda scm fýlgir þeim svo í gegnum námið. Raunvísinda- deild tekur einnig þátt í þvcrfaglegu meistaranámi í sjávarútvegsfræði og umhverfisfræði. Fyrir þá sem hugsa hátt: Hugvísindi Innan heimspekideildar er hægt að taka MA-próf í eftirfarandi greinum: Almenn bók- menntaffæði, danska, enska, heimspckj, íslenskar bókmcnntir, íslensk málfræði, íslensk fræði og sagnfræði. Að auki er hægt að taka M.paed.-próf í íslensku, dönsku og ensku. Ætlast er til þess að nemendur hafi ákveðinn grunn í faginu scm þeir hyggjast sérhæfá sig í. Þessar forkröfúr eru teknar fram í kennsluskrá en oftast eru það þrjátíu eða scxtíu einingar í viðkomandi fagi á BA-stigi. Einnig verður að ná 7,25 í aðaleinkunn á BA-prófi og 8,0 í BA-ritgerð. Allt meistaranám í heimspekideild er 60 einingar og gert cr ráð fýr- ir að það sé tekið á tveimur árum. Hægt er að taka hluta námsins í útíöndum og í dönsku, ensku og heimspeki er beinh'nis ætíast til þess. Meistaranám skiptist almennt í námskeið og svo lokaritgerð. Við upphaf framhaldsnáms velja nemendur sér leiðbein- anda sem fýlgir þeim svo í gegnum námið. Fyrir þá sem hugsa um guð: Guðfræði Meistaranám í guðffæði er 60 einingar ef maður hefúr lokið BS-prófi í guðfræði en 30 einingar fýrir þá sem lokið hafa embættisprófi í guðfræði. Stúdentar sem lokið hafa BA~ prófi úr öðrum fögum geta sótt um inngöngu í MA-nám í guðfræði að uppfýlltum viss- um skilyrðum. Fyrir þá praktísku: Starfsmiðað nám í nokkrum deildum cr hægt að taka starfsmiðað viðbótarnám effir fyrstu háskólagráðu. í guðfræði er hægt að stunda nám til að öðlast starfsréttindi djákna. Djáknar eru safn- aðarstarfsmenn og annast líknarþjónustu annars vegar og fræðslu hins vegar. Þeir sem lokið hafa háskólaprófi, einkum á sviði félagsráðgjafar, uppeldisfræði eða hjúkrunar- fræði, eiga þess kost að innrita sig í 30 cininga djáknanám. Djáknanám til 90 eininga er á vegum guðfræðideildar en er einnig stundað innan félagsvísindadeildar. Það miðast við þá sem ekki hafa lokið háskólaprófi. I félagsvísindum er hægt að taka cftirfarandi greinar: Hagnýt fjölmiðlun (32 eining- ar), félagsráðgjöf (30 einingar), kennslufræði (30 einingar), bókasafnsfræði (2 ára nám), nám fyrir skólasafnverði (30 einingar), námsráðgjöf (34 einingar). Inntökuskilyrði í þetta nám er BA-próf úr skyldum fögum og er það nánar tilgreint í kennsluskrá. í raunvísindum er hægt að taka eins árs viðbótarnám í stærðffæði, eðlisfræði, jarðeðl- isfræði, efúafræði, lífefnaffæði, hffræði, jarðfræði, landaffæði og matvælaffæði. Inntöku- skilyrði í þetta nám er BS-próf úr deildinni eða sambærilegt próf. Fyrir þá sem ætla alla leið: Doktorsnám Hægt er að taka doktorspróf í eftirfarandi greinum: Læknisffæði, lyfjafræði, íslenskum bókmenntum, íslenskri málfræði, sagnffæði, guðffæði, verkffæði, raunvísindum. við- skiptafræði, hagfræði og tannlæknisfræði. Doktorsnám tekur almennt þrjú til fimm ár og er að mestu leyti sjálfsnám. stúdentablaöiö - febrúar ‘01 9

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.