Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 20

Stúdentablaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 20
I Óhentugur sessunautur Z7 Rétt svefnaðferð \ Svona á ekki að sofa Aður en lengra er haldið viljum við að það komi skyrt fram að hér er hvorki ætlunin að mæla með þeirri háttsemi sem lýst er í fyrirsögn né mæla gegn henni. Aftur á móti höfum við tekið eftir því að marga sem stunda þetta skortir til þess kunnáttu og rann okkur því blóðið til skyld- unnar að veita samnemendum okkar nokkr- ar ráðleggingar, þar eð við höfum jú náð talsverðri færni á þessu sviði og verið öðrum fyrirmynd um nokkurt skeið. Fyrsta aðferðin sem lýst verður, og jafnframt ein sú algengasta, er það að sofa. Kemur þar margt til, bæði er það auðvelt í framkvæmd, krefst lítils undirbúnings og er einkar áhrifa- ríkt, enda nánast ómögulegt að læra í því ástandi. Þó er ekki sama hvernig farið er að. Höfúðatriði er að draga ekki að sér athygli, en athygli annarra, ekki síst kennarans, er einhver versti óvinur svefnslóðans. Viðvan- ingar í þessari aðferð eiga það til að skera hrúta, og draga þannig neikvæða athygli að sér. Aðrir lenda í því að sofa of lengi, og missa kannski af frímó, sem er vont, ekki síst ef það eru pizzur í boði, enda sannast þá oft máltækið að sveltur sitjandi kráka en fljúg- andi fær. Önnur mistök sem menn gera er að velja sér sæti á vondum stað, t.d. á fremsta bekk eða öðrum stað sem athygli beinist að. Enn aðrir sofna í slæmum stell- ingum, t.a.rn. hallandi sér aftur á bak svo andlitið vísar til himins, sem bæði veldur bakverk og cr hlálegt á að líta. En hvað cr til ráða? Hér getur góður félagi skipt sköpum. Hann getur bankað í mann ef í óefni stefnir og athyglin er farin að beinast að manni. Hvað staðsetningu varðar skipta nokkur atriði höfuðmáli. Best er að velja sér sæti aftarlega fýrir miðju en þó ekki of aftar- lega. Gott er að sitja við vegg ef mögulegt er, því þá er hægt að halla sér upp að hon- um. Mjög mikilvægt er að þekkja sessunauta sína og forðast cins og heitan eldinn nem- endur sem spyrja í tíma og ótíma, það hefúr bæði truflandi áhrif á svefninn og drcgur að sér óæskilega athygli. Þá er betra að finna sér hlédrægan sessunaut. Einnig skal forðast aðra nemendur sem eru sofandi, því ekki er víst að þeir hafi lesið þessa grein. En svefninn er ekki eina leiðin, því þótt far- ið sé rétt að getur hann samt sem áður vak- ið andúð kennarans, sem gctur aftur valdið vandræðum þegar hann fer að gefa einkunn- ir. Best er að kennarinn haldi að maður sé að fylgjast með þegar maður er í raun að gera eitthvað allt annað. T.d. er gott að eiga áhugamái sem hægt er að sinna, t.d. teikna, skrifa lesendabréf um vélindabakflæði í Moggann, skipuleggja teitið um helgina eða gera eitthvað annað sem hægt er að gera með penna og stílabók, og búa þannig til þá blekkingu að maður sé að glósa. Sú aðferð sem reynst hefúr okkur hvað drjúgust er bíóleikurinn. Hann hefúr þann kost að bæði er hægt að spila hann einn eða með öðrum, og fer þannig fram að fýrsti maður skrifar nafn á bíómynd í stílabók. Næsti maður þarf þá að þekkja leikara úr þeirri mynd og aðra rnynd með þeim leikara, skrifa það fýrir neð- an og þannig koll af kolli, t.d. Maverick - James Garner - Space Cowboys - Tommy Lee Jones - Volcano - Anne Heche o.s.frv. Einstaklingsútgáfan felst í því að skriiá fýrst nafn einnar kvikmyndar efst á blaðið og annað neðst og tengja svo á milli þeirra í ákveðið mörgum skrefúm, og reynist oft þrautin þyngri. Ekki er nauðsynlegt að hafa niyndir og leikara í leiknum, það er t.d. hægt að hafa leikmenn og fótboltalið, hljómsveitir og tónlistarmenn eða hvað ann- að, allt eftir smekk og hugmyndaflugi hvers og eins. Auðvitað er hægt að gera margt annað í tím- um án þess að læra nokkuð. T.d. spila marg- ir leiki í farsímum sínum, aðrir lesa blöð og bækur um einhvcr óakademísk málefni, og surnir stara bara út í loftið eða á einhvcrn annan. Hver sem aðferðin er, þá er aðalmál- ið að temja sér rétt hugarfar. Menn verða að gera upp við sjálfa sig hvort þeir hyggist læra í tímum, og komist menn að þeirri niður- stöðu að þeir ætli ekki að gera það skiptir mestu að undirbúa sig vel, finna sér aðferð sem hentar manni og passa að maður trufli ekki aðra í leiðinni. Hið akademíska frelsi, sem þú borgar 25.000 krónur fýrir á ári hvcrju, tryggir þér réttinn til að stunda þessa háttscmi, og því ekkert til að skammast sín fýrir. Aftur á móti bendum við á að allt er best í hófi, enda sanna dæmin að margir hafa farið flatt á þessu og frýjum við okkur allri ábyrgð ef illa fer í maí. Arnór Hauksson og Oddbergur Eiríksson 20 stúdentablaöið - febrúar ‘01

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.