Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.02.2001, Page 22

Stúdentablaðið - 01.02.2001, Page 22
j Röskva vill fulla ferð áfram! - Úr málefnaskrá Röskvu Þjóðarátak í þágu Háskóla íslands - kraft- mikill Háskóli fýrir alla 'jþ í tilefni 90 ára afmælis Háskóia Islands vill Röskva efna til þjóðarátaks í þágu Há- skóla Islands. Afmxlið er kjörið tækifæri til að vekja þjóðina til vitundar um mikil- vægi öflugs þjóðskóla. Með skipulögðu og sameiginlegu átaki stíidenta, ríkis, sveitarfélaga, atvinnulífs og aimennings, þar sem hver hefur sitt hlutverk gctum við skapað kraftmikinn Háskóla fyrir alla: Atvinnulífið: Meðal annars verði markvisst -t ieitað afmælisgjafa til Háskólans frá fyrir- tækjum og tekið upp samstarf við Samtök atvinnulífsins og fleiri um úttekt á því hvernig háskólamenntun skilar sér til at- vinnulífsins. Fyrirtæki veiti stúdentum styrki til sérstakra verkefna og rannsókna og möguleikar stúdenta á framhaldsstyrkjum hjá Nýsköpunarsjóði námsmanna verði auknir. Almenningur: Stúdentar standi fyrir öflugri kynningu á starfsemi Háskólans og mikil- ^vægi hans og almenningur riti undir áskor- un á stjórnvöld um að hækka fjárveitingar til Háskóla Islands á afmælisárinu. Sveitarfélög: Sveitarfélögin á höfúðborgar- svæðinu verði virkjuð til uppbyggingar Stúdentagarða og sveitarfélög á lands- byggðinni til uppbyggingar rannsókna. Ríki: Markvisst verði barist fyrir því að ríkið ^geri vel við Háskólann á afmælisárinu og m.a. hvatt til þess að afmælisgjöf ríkis til skólans verði sérstök fjárveiting til bygg- ingaframkvæmda. Sóknarfærí í lánasjóðsmálum • Röskva vili hærri grunnframfærslu og frí- tekjumark. Nýlegur úrskurður umboðs- manns Alþingis skapar sóknarfæri við endurskoðun grunnframfærslunnar. • Röskva vill að stúdentar taki af skarið og geri sjálfir vandaða könnun á raunveru- legri framfærsluþörf námsmanna. • Röskva vill afnám tekjutengingar við maka með því að nýta þann byr sem öryrkja- dómurinn gefúr. Lifandi Háskóli • Röskva ætlar að festa Stúdentadaginn í sessi og gera veg hans enn mciri. • Röskva vili koma á fót nýnemaviku í sam- starfi við nemendafélögin með margvís- legum uppákomum. Áframhaldandi sókn í kennslumálum • Röskva vill að utanaðkomandi fagaðiiar verði látnir meta gæði skora og deilda. Röskva vill að kennslukannanir taki mið af sérkennum deilda til að fá fram gleggri mynd af gæðum námskeiða. • Röskva vill flýta birtingu próftaflna. • Röskva vill samstarf við aðra innlenda skóla þannig að nemendur geti tekið hluta náms síns við þá. • Röskva vill að vinnuálag bak við hverja einingu verði endurskoðað. Þátttaka stúdenta í rannsóknum Röskva vill efla aðstoðarmannasjóð HI. • Röskva vill auka möguleika stúdenta á að starfa á fræðasetrum vítt og breitt um landið. Stúdentavænt húsnæðiskerfi • Röskva vill réttlátara húsaleigubótakerfi sem veitir fleiri námsmönnum rétt til húsaleigubóta. • Röskva vill nýta þjóðarátakið til frekari uppbyggingar Stúdentagarða. Tæknivætt stúdentasamfélag • Röskva vill standa fyrir söfnunarátaki til að koma skjávörpum í alla helstu fyrirlestrar- sali HÍ. • Röskva vill prófgagnabanka á netinu þar sem nemendur geta nálgast gömul próf með aðgengilegum hætti. • Röskva vill nútímalegri þjónustu á Stúd- entagörðum. Biðlistar verði aðgengilegir á netinu og nemendur losni við að skila inn skattframtölum og námsyfirliti. • Röskva vill vinna áfram að smartkortavæð- ingu háskólasamfélagsins og rýmka með því opnunartíma bygginga HÍ. Búið að bömum stúdenta • Röskva vill hcfja rekstur nýs leikskóla í Efri-Hlíð. • Röskva vill leita samninga um forgang barna stúdenta í dagvistun við nágranna- sveitarfélög Reykjavíkur. • Röskva vill aukið tillit til séraðstæðna barnafólks hjá LIN. • Röskva vill setja barnagæslumiðlun Stúd- entaráðs á nctið. Magamál • Röskva vill matsölustað í Stúdentaheimil- ið við Hringbraut. • Röskva vill að FS selji stúdentum heitan mat á hagstæðu verði á háskólasvæðinu. • Röskva vill matar- og kaffisjálfsala í bygg- ingar Háskólans. Umhverfisvænn Háskóli • Röskva vill halda „Grænan dag“ til að auka umhverfisvitund háskólafólks. • Röskva vill auðvelda endurvinnslu gæða- pappírs, gosdrykkjaumbúða og bylgju- pappa á háskólasvæðinu. Tengsl stúdenta, atvinnulífs og Háskólans • Röskva vill reglulegt hringborð Háskólans og atvinnulífsins til að auka tengsl skólans við fýrirtæki og skapa aukið fjármagn til HÍ. • Röskva ætlar að berjast fyrir því að fýrir- tæki sjái sér skattalegt hagræði í að veita fé til Háskólans. • Röskva vill auka möguleika stúdenta á framhaldsstyrkjum hjá Nýsköpunarsjóði námsmanna. Réttindi stúdenta • Röskva vill sérstaka Réttindaskrá stúdenta þar sem réttindi og skyldur nemenda eru skilgreind með skýrum hætti. • Röskva vill tryggingamál stúdenta í höfn þannig að réttarstaða þeirra sé tryggð. Og allt hitt... Röskva hefur gefið út ítarlega stefnuskrá sem tekur á öllum þáttum háskólasamfélags- ins. Kynnið ykkur málefni beggja fýlkinga og takið afstöðu. Það skiptir máli að kjósa! Helstu atriði í stefnu Vöku 2001 Vaka leggur í þessari kosningabaráttu fram mjög skýran valkost fýrir stúdenta. Við setj- um fram ítarlega dagskrá fýrir Stúdentaráð sem inniheldur fjóra viðburði í hverjum mánuði og langflestir þeirra eru algjörlega nýir af nálinni. I’essir viðburðir eiga sumir að stuðla að samstöðu stúdenta en fjölmarg- ir þeirra varða hagsmunamál stúdenta og Háskóla Islands. Hér er listi yfir atburðina en nánari útskýringar fást á heimasíðu okkar www.vaka.hi.is og í útgáfú á vegum félags- ins. Við byrjum í apríl þegar við höfúm fengið tækifæri til að koma okkur fýrir í Stúdentaráði. Apríl Fjölskylduvika - margvíslegar uppákomur fýrir fjölskyldufólk. Ráðstefna um framtíð háskólasvæðisins - stórt hagsmunamál fýrir stúdenta. Opinn ftindur um kosningarnar í Færeyjum - áhugavert mál. Húsnæðismál Háskólans tekin föstum tök- um - kynningarátak Stúdentaráðs. Maí Jóga í leikfimishúsinu - losnið við stressið í prófúnum. Lánasjóðsmálin í brennidepli - hugmyndir Vöku lagðar til grundvallar í árangursríkum viðræðum við LIN. Hagsmunasamtök íbúa á stúdentagörðum stofnuð - sameiginlegur málsvari scm sinnir hagsmunum íbúa á görðunum. Betrumbætt einkunnaskilaheimasíða - já- kvæður þrýstingur og málefnaleg gagnrýni. Júní Frumkvöðlanámskeið fýrir stúdenta - tæki- færin eru alls staðar. Næturgaman í Nauthólsvík - skemmtilegur viðburður um sumarið. Síungur Háskóli - Stúdentaráð tekur virkan þátt í 90 ára afmæli Háskólans. Lokaverkefnabankinn opnaður á netinu - hugmynd Vöku framkvæmd með stæl. JÚIÍ Ný heimasíða SHI opnuð - alvöru netsam- félag stúdenta. Hollvinasamtök allra dcilda styrkt - raunhæf leið til að styrkja stöðu deildanna. Viðskiptapakki Stúdentaráðs kynntur - Stúdentaráð kemur fýrirtækjum í samband við háskólasamfélagið. Islensk vísindi og þróunarlöndin - ráðstefna um hvernig vísindasamfélagið getur komið þróunarlöndunum til aðstoðar. Stúdentar láta gott af sér leiða. Ágúst Handbók stúdenta kemur út - í fýrsta sinn kemur Akadcmía út í byrjun skólaársins - nú bætt og breytt. Hvar á stúdentinn heima - Stúdcntaráð berst fýrir betri húsakosti fýrir stúdenta. Stúdentar í stórinnkaupum - ýmis tilboð til stúdenta kynnt. Hraðlestrarnámskeið fýrir stúdenta - stúd- entar lesa hraðar með Vöku. September Stúdentadagurinn - góð hefð fest í sessi. Heilsuvika - hcilbrigð sál í hraustum líkama. Ráðstefna um netið og kennsluhætti fram- tíðarinnar. Hvernig kernst ég í gegnum Háskólann - Stúdentaráð, undir forystu Vöku, tekur vel á móti nýstúdentum og hjálpar þeim að að- lagast. Námskeið fýrir hagsmunafúlltrúa stúdenta - Stúdentaráð eykur tengsl við hagsmunafull- trúa og aðstoðar þá við störf sín. Október Háskólaleikarnir - HÍ keppir við aðra skóla. Vísindaferðir fýrirtækja í Háskólann - Vaka býður fulltrúum fýrirtækja að kynna sér Há- skóla Islands. Tónlistarvika - ljúfir tónar létta andrúms- loftið í Háskólanum. Á jöðrum hefðbundinna fræða - ráðstefna um þverfaglegt nám og rannsóknir. Nóvember Leikhúsvika - háskólafólk skreppur í leikhús og leikhúsfólk skreppur í Háskólann. Glósuveisla - Stúdentar skiptast á glósum. Trúarbragðavika - jafnréttisnefnd Stúdenta- ráðs stendur fýrir kynningarátaki á trúar- brögðum heimsins. I’unglyndir dagar - Stúdentaráð, undir for- ystu Vöku, tekur skammdegisþunglyndi til umræðu. Desember Fullveldishátíð - Stúdentaráð, undir forystu Vöku, heldur glæsilega hátíð þann 1. des. Jóga - það þarf líka að slappa af í jólapróf- unum. Jólatrésskemmtun - að venju stendur SHI fýrir jólaballi í samstarfi við Félag háskóla- kennara. Virkt eftirlit með prófaframkvæmd - Vaka á vettvangi. Janúar Eru próf besti mælikvarðinn á námsárangur? - ráðstefna um námsmat í Háskóla. Dansnámskeið - stúdentar rifja upp sporin fýrir árshátíðavertíðina Er háskólanám fúllt starf? - niðurstöður í viðhorfskönnun stúdenta kynntar og um- ræður um viðhorf til háskólanáms. Fjármálanámskeið - Stúdentaráð hjálpar stúdentum að sjá fram úr skuldunum. Febrúar Réttindavika - kynning á baráttumálum stúdenta Innanskólarimman - ftilltrúar deilda takast á í ýmsum þrautum Kosningar til Stúdentaráðs og háskólaráðs - líflegur tími í hagsmunabaráttunni Háskólinn í alþjóðlegu umhverfi - ráðstefna um stöðu HI í aþjóðlegu vísindasamfélagi Mars Menningardagar - menningarviðburðir fýr- ir stúdenta Nýtt Stúdentaráð - tekur við 15. mars Önnur helstu atríði: LÍN Hækkun frítekjumarks og lækkun skerðing- arhutfallsins eru forgangsmál. Betri þjónusta. Afnám tekjutengingar við húsaleigubætur. Afnám skerðingar vegna tekna maka. Kennslumál - og hagsmunamál Stúdcntar í vcrknámi séu tryggðir. Þverfagleg nám í öndvegi. Próftöflur og stundaskrár í kennsluskrá. Reglulegar kennslukannanir. Framhaldnám eflt. Prófsýningar auglýstar. Skráningareyðublöð á netið. Betrumbætt einkunnaskilasíða. Gömul próf á netið. Starf Stúdentaráðs Betri samskipti við nentendafélög og hags- munafulltrúa. Óháð hagsmunabarátta. Námskeið fýrir hagsmunafulltrúa. Hús og HÍ-býli Sólarhringsopnun í byggingum Háskólans. Meira úrval, lengri opnunartími og fjöl- breytni í kaffistofunum. Háskólatorg. Afnám einkaleyfisgjalds Happdrættis Há- skóla íslands. Ríkið styrki húsbyggingar HI til jafns við byggingar annarra skóla. Staðarnetið notað í kennslu. Betri bókakostur. Fleiri tímarit. Bætt aðgengi fadaðra. Lengri opnunartími I’jóðarbókhlöðunnar. Fjölskyldumál Fleiri dagvistunarúrræði. Stundaskrár taki mið af eðlilegum vinnu- degi. Betri nýting á skólaárinu. Barnfóstruvefúr. Hér er tæpt í stikkorðaformi á áhersluatrið- um Vöku fýrir þessar kosningar. Við bend- um fólki á heimasíðu okkar þar sem nánari upplýsingar er að finna. 22 stúdentablaöið - febrúar ‘01

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.