Stúdentablaðið - 01.01.2003, Qupperneq 7
7
Stúdenfóblaðið
0m«Mi»
IAESTE
IAESTE stendur fyrir „The
International Association for the
Exchange of Students for Technical
Experience“. Þetta eru alþjóðleg,
sjálfstæð og ópólitísk samtök fyrir
stúdenta í verkfræði og raunvísind-
um. Markmið samtakanna er að efla
alþjóðleg tengsl og samskipti með
því að stuðla að starfsþjálfún fyrir
nema á háskólastigi á erlendri
grundu. I dag er starfsemi IAESTE
á íslandi í höndum stúdenta við
Háskóla Islands, sem starfa allir sem
sjálfboðaliðar, en unnið er að því að
fá aðra háskóla í samvinnu.
Síðan samtökin voru stofnuð
1948 hafa margar þjóðir bæst í
hópinn og eru nú rúmlega 80 talsins,
víðsvegar um heiminn. Um 300
þúsund nemar hafa nú fengið starfs-
þjálfún á vegum samtakanna, þar af
rúmlega 400 íslenskir nemar.
í janúar ár hvert er haldin
aðalráðstefna samtakanna. Þar er
ráðið ffarn úr þeim málum sem snúa
að rekstri samtakanna á alþjóðlega
vísu en að auki fara þar frarn starfa-
skipti. I ár var ráðstefnan haldin í
Bankok í Taílandi, þar mættu um
200 manns og á næsta ári verður hún
haldin í Austurríki. Fyrir íslands
hönd eru það yfirleitt formaður og
verðandi formaður sem sitja ráð-
stefnuna.
IAESTE nefndimar sjá um að
útvega störfin, skipta þeim við störf
frá öðrum löndum og auglýsa störfin
sem fást í staðinn þegar heim er
komið. Fyrir hvert íslenskt starf fær
íslenskur nemi tækifæri til að fá
starfsþjálfun erlendis og erlendur
nemi að koma hingað til lands.
IAESTE sér um alla pappírsvinnu
fyrir nemana og finnur húsnæði fyrir
erlendu nemana. Öflugt sumarstarf
er rekið á íslandi í samvinnu við
AIESEC (samtök viðskipta- og
hagfræðinema) og IMSIC (samtök
læknanema).
Umsækjendur þurfa yfirleitt
að hafa lokið 2 árum í raungreina,
tæknifræði- eða verkfræðinámi við
háskóla eða sambærilega stofnun.
Flestir sem fara erlendis á vegum
IAESTE eru 8-12 vikur í starfsþjálf-
uninni.
Starfsemi IAESTE stendur og
fellur með því að vinnuveitendur,
stofnanir og skólar á háskólastigi
veiti samtökunum lið bæði með
framboði á störfum og ekki síður
með fjárstuðningi. Á heimasíðu
okkar má afla sér meiri upplýsinga
um félagið, starfsemi þess, styrktar-
aðila og þau störf sem eru í boði
hverju sinni. Slóðin er http:-
//www.hi.is/~iaeste.
Helga Kolbrún Magnúsdóttir
Formaður IAESTE á íslandi
2002-2003
95Um 300 þúsund nemar hafa nú fengið starfsþjálfun á vegum samtakanna, þar af rúm-
lega 400 íslenskir nemarU
„Kórinn okkar“
æfir af kappi
Stórtónleikar 2. mars!
Á mánudags- og fimmtudagskvöld-
um berast ljúfir tónar um
Aðalbyggingu Háskólans. Söng-
fuglar í Háskólakómum, „kómum
okkar“ syngja hástöfum, fá sér siðan
kaffi og kex, spjalla og syngja meira.
Hópurinn fer ört vaxandi, svo mikið
að tala má um hálfgerða sprengingu.
í haust komust miklu færri að en
vildu og i raddpmfunum eftir jólin
fór mæting fram úr björtustu vonum.
En af hverju vill fólk vera í kór og
hvað er þetta lið eiginlega að gaula?
Æfingabúöir og
jólabolla
„Fólk vill einfaldlega vera í kór því
það er gaman að vera í kór,“ segir
Birgir Tryggvason formaður.
Blaðamaður hefur laumast inn á
æfingu. I bakgrunni hljóma raddir
tenóra og bassa. „Við erum að æfa
mjög skemmtileg og metnaðarfull
verk og síðan er þetta náttúrlega
súper félagsskapur. Það er gaman að
hitta allt þetta fólk tvisvar í viku og
syngja saman og svo eru reglulega
partý og einhverjar uppákomur."
Blaðamaður hefur einmitt
heyrt að æfingabúðimar í Skálholti
um miðjan janúar hafi verið sérlega
vel heppnaðar. „Jú, jú, það passar.
Menn komu raddlausir í bæinn á
sunnudeginum eftir langa laugar-
dagsæfingu og standandi partý ffam
á morgun," segir Lára Kristín
Skúladóttir varaformaður. „Þetta lið
kann að skemmta sér,“ bætir hún
hlæjandi við og minnist sérstaklega
bollunnar í jólapartýinu sem
samanstóð af malti, appelsíni og
vodka. Frumleg blanda það. „í
febrúar verðum við síðan með
grímuball og árshátíðin okkar er í
mars. I maí fömm við svo í túr um
landið og gleðjum íslensku þjóðina
með söng.“
Gloria eftir Vivaldi
En þótt kórmeðlimir séu partýdýr
upp til hópa snýst kórlífið ekki ein-
göngu um skemmtanir. Þessa dagana
æfir kórinn nefnilega hörðum hönd-
um fyrir stórtónleika í Lang-
holtskirkju sunnudaginn 2. mars.
„í fyrra sungum við Carmina
Burana ásamt öðmm kór, slagsverks-
leikurum, Diddú og fleirum. Við
hlutum algjöra metaðsókn, urðum að
halda aukatónleika og sungum alls
fyrir rúmlega 800 manns. í ár ætlum
við náttúrlega að gera engu minna.
Þetta verður væntanlega mjög flott,
við syngjum til dæmis Gloriu eftir
Vivaldi, verk sem margir þekkja.
Einnig má nefna Little Requiem eftir
John Tavener og Agnus Dei eftir
Krystof Penderecki. Við verðum
siðan bæði með hljómsveit og hana
Diddú með okkur og syngjum sem
fyrr með kómum Vox Academica.“
Lára Kristín bætir við að
spenna kórmeðlima fyrir tón-
leikunum fari vaxandi. „Það er
ofsalega gaman að takast á við
verkefni af þessu tagi og við
hlökkum til stóra dagsins.“
Flytjendur verða hátt í hundrað þvi
Háskólakórinn telur um sextíu
manns og meðlimir Vox Academica
eru um þrjátiu.
Starfið hefur
spurst út
„í fyrra var Háskólakórinn mun
minni. Starfið þá var hins vegar, eins
og nú, mjög skemmtilegt og gefandi
og ég held að það hafi einfaldlega
spurst út. Vinir þeirra sem eru fyrir i
kómum vildu vera með í gleðinni og
svo ffamvegis. í haust prentuðum við
líka plaggöt með myndum úr starfmu
og hengdum um skólann. Þau vöktu
mikla athygli og við fengum flóð af
fólki í raddprufumar. Þar sem
nokkuð færri strákar en stelpur
mættu, gátum við hins vegar ekki
tekið inn allar þær góðu söngkonur
sem við hefðum viljað. Það verður
að vera ákveðið jafnvægi á milli
radda,“ segir Birgir. Hann bætir við
að strákamir séu engu að síður um
tuttugu talsins, nokkuð sem verði að
kallast mjög gott í blönduðum kór af
þessu tagi.
Birgir og Lára Kristín verða að
fara aftur á sinn stað því nú á að
renna í gegnum alla Gloriu.
Blaðamaður hallar sér aftur í sætinu
og horfir yfir hópinn. Það er létt yfir
fólki og andrúmsloftið þægilegt.
Menn pískra saman, brosa og hlæja.
Blaðamaður ræskir sig og byrjar
skyndilega að raula lágt. Kannski
hann sé mögulegur bassi?
Og nú stendur kórinn upp,
stjómandinn gefur tóninn og Gloria
eftir Vivaldi hljómar um salinn.
95Menn komu raddlausir í bæinn
á sunnudeginum eftir langa
laugardagsæfingu og standandi
partý fram á morguníé