Dýraverndarinn - 01.12.1959, Síða 9
YNGSTU
LESENDURNIR
„Já, satt er þa'ð . .
Það var einu sinni hér áður fyrrum, að maður,
sem var mjög stórskorinn og þótti ósköp ófríður,
var verzlunarþjónn í sérlega vinsælli búð í Reykja-
vík. Þetta var mesti dugnaðarmaður, og áreiðan-
legur var hann. Líka var hann lipur og gaman-
samur og því mjög vinsæll, og ekki lét hann sér
bregða við það, þó að einhverjum yrði starsýnt á
hann. Hann hafði meira að segja til að brosa að
því.
Eitt sinn fundu gárungar upp á að segja karli
austan úr sveit, frekar fáfróðum og ekki vel
greindum, en afar forvitnum, að nú hefðu þeir
tekið upp á því í einni búðinni í Reykjavík að
hafa apa við afgreiðslustörf.
„Hvað er að heyra þetta?“ sagði karlinn. ,,Er
hægt að nota hann við þess konar verk?“
,,Ég held það svari því,“ sagði einn af gárung-
unum. „Þú ættir bara að sjá, hvað lipur hann er
við fólkið, — hann er meira að segja farinn að
tala sæmilega íslenzku og miklu skárri en sumir
Danirnir, sem eru hérna búðramenn.“
„Skoðum þann stutta!“ sagði karlinn.
„Kannski þú viljir sjá hann?“ sagði annar af
gárungunum.
sem sett er samkvæmt lögum nr. 21 frá 13. apríl
1954, verði fjárflutningatæki þau, sem annast eiga
fjárflutninga, látin mæta til skoðunar fyrir þann
tíma, sem fjárflutningarnir hefjast að haustinu.
Verði flutningatækin ekki tekin gild til búfjár-
flutninga nema stjórnendur þeirra geti sýnt skoð-
unarvottorð upp á fullgildingu þeirra.
Ketlumálið (Frá Dýraverndunarfélagi Reykja-
víkur): Með því að búið á Ketlu á Rangárvöllum
er rekið af Reykvíkingum og eftirlitsmaður D. R.
hefur sannprófað, að meðferð fjár austur þar hef-
ur verið mjög ábótavant, þá hefur stjórn félagsins
rætt ýtarlega kæru þá, sem fram hefur komið frá
dýralækninum á Hellu og sögð er í rannsókn.
Stjórn D. R. skorar á sambandsstjórnina að láta
mál sem þetta til sín taka og fylgja fast eftir og
heitir stuðningi sínum og aðstoð í því efni. Enn-
fremur óskar stjórn D. R. eftir skýrslu sambands-
stjórnar um málið fyrir næsta fund, sem boðaður
er 18. þ. m.
Stofnun dýraverndunarfélaga: Arsþingið sam-
þykkir að fela sambandsstjórn að vinna sjálf að
stofnun dýraverndunarfélaga í nágrenni Reykja-
víkur og leita til starfandi félaga um aðstoð þeirra
um félagsstofnanir hið næsta sér. Ennfremur að
stjórn sambandsins ráði hæfan mann til að fara
um landið og gangast fyrir stofnun dýraverndun-
arfélaga, enda megi sambandsstjórn verja til þessa
allt að fimmtán þúsund krónum af fé sambands-
ins.
Hækkun á ríkisstyrk: Ársþingið skorar á stjórn
sambandsins að beita sér fyrir hækkun á styrk
frá ríkissjóði til sambandsins.
Miklar umræður urðu um þessi mál, en sam-
þykktirnar voru allar gerðar einróma.
DÝRAVERNDARINN
89