Dýraverndarinn - 15.03.1915, Qupperneq 14
IO
DÝRAVERNDARINN
HESTAR OG- REIÐMENN Á ÍSLANBI.
Eftir George H. F. Schrader. Jónas Jónasson hefir islenskaS.
Akureyri. Prentsmiöja Björns Jónssonar. 1913.
Þaö er nýnænii aö geta sagt frá bók á islensku um hesta-
rækt, hiröingu á þeim og meðferö. Engin bók til á íslensku
um þau efni fyr en þessi kemtir, sent hér er nefnd. Hér er
heldur engin hesta-r æ k t, þrátt fyrir allan hestafjöldann.
„Aöalmarkmiöið, sem eg er aö ná,“ segir höfundurinn, „er
aö bæta kjör hinna ágætu hesta á íslandi,, til þess aö þeir nái
þeint réttindum til góörar hiröingar og nteöferöar, sent mann-
úöin heimtar aö þeim sé látin í té.“
Bókin er 225 blaösíöur í 4 bl. broti, meö fjölda af ágætum
myndurn. Um svo stóra bók veröur hér engiim ritdómur skrif-
aöur. Þaö veröur aö nægja, aö benda á þessa íróðlegu og
góðu bók. Verð hennar er 3 krónur, og því ódýr eftir stærö.
Hvort þaö borgar sig fyrir hrosseigendur aö gefa 3 kr. fyrir
allan þann mikla og margvíslega fróöleik, sent bókin hefur aö
geyrna! Þær krónur koma tíu sinnum aftur á fyrsta ári.
Efnisyfirlit: Iiófurinn. Iióf- og fótahiröing. Samsetningur
á hófsmyrslum. Járningin. Hesthúsin. Opinlier samkomuhús
og hesthús. Fóörun hesta. Fóðurtegundir og fóðurskamtar.
Dagskamtar. Um brynningar hesta. Um þrifnaö á hesturn.
Varnar- og læknisráö. Beislaútbúnaöur. Mélin. Teymingar og
taumliönd. Hefting. Reiötygi. Söðlar. Álagning. Að stiga á
bak og af baki. Taumhald. Samkend manns og hests. Hversu
ríða skal. Ganglag hesta. Vaður. Vagnar og kerrur, aktygi og
keyrsla. Svipur, sporar og kargir hestar. Kynbætur hesta.
Dýraverndunarfélög. Skýrsla um hámark hlauphesta og stökk-
hesta.
Viöbætir er um: búnaðar- og verslunarmál, liendingar til
,,íslandsvinafélagsins“, Caroline Rest (feröamanna- og
hestahælið á Akureyri) og þakkarorð.
Flér er mikiö mál og margt um að ræða. Annað mál er þaö,
hvort íslenskir hestaeigendur og hestamenn, reiömenn, vilja
skrifa undir allar þær kenningar, sem bókin flytur. En hvað
sem þvi líður, verðum vér að ráðleggja öllurn hestaeigendum
að eignast bókina og fræöast af henni. Það er þeirra eigin
liagur, og hestunum þá ekki síður til góðs.