Dýraverndarinn - 15.05.1916, Qupperneq 10
42
DÝRAVERNDARINN
veröa til þess aö draga úr hinum óhæfilega kattafjölda þessa
bæjar, og þá væri vel fariö.
Gæti ekki bæjarstjórn Réykjavikur kipt þessu í lag?
Dýravinir mundu veröa henni þakklátir fyrir, ef hún gæti
eöa vildi ráöa bót á þessu.
JÓH. ÖGM. ODDSSON.
RAUÐA STJARNAN
Allir kannast viö „R auöa krossin n“, hið mikla líkn-
arstarfsfélag, sem stofnað var í Genf 1863, og sem unnið hefur
svo dyggilega síðan, og framkvæmt hin mestu stórvirki bæði
í friði og stríði, ekki síst nú á seinustu og verstu tímunum.
Hinn 24. des. 1914, fáum mánuðum eftir að Norðurálfustriðið
hófst, var alþjóðafundur haldinn í sama salnum i Genf, sem
„Rauði krossinn" var stofnaður í, og voru til fundarins sendir
kosnir fulltrúar frá öllum þcim þjóðum, sem tóku þátt í styrj-
öldinni. Aðal afrek fundarins var stofnun „R a u ð u s t j ö r n-
u n n a r“. Hinn 22. febr. 1915 var félag með þessu nafni stofnað
og í því augnamiði a ð 1 í k n a s k e p 11 u m á v í g v e 11-
i n u m. Félagið er samsteypa margra annara líknarfélaga og
dýraverndunarfélaga víða um lönd. En í það hafa og gengið
margir einstakir menn, sem hafa vilja til og efni á að styðja
hið góöa málefni. Árstillagiö fyrir hvern mann er 5 frankar,
en æfimeðlimir greiða 100 franka.
Nærri má geta, að þessa félagsskapar hefur veriö full þörf.
Hver mundi annars hafa gefið- sér tíma til að líkna og hlynna
að særðum skepnum, sundurtættum af sprengikúlum ? Hver
mundi liafa stytt þeim aldur, sem börðust dauðastríðinu, og
engin lífs von var? Það er hugfróun fyrir dýravini að vita að
]>arna er heil hersveit líknandi manna, sem hefur sama starfið
að vinna fyrir skepnurnar eins og „Rauði krossinn“ fyrir
mennina.