Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.06.1930, Qupperneq 5

Dýraverndarinn - 01.06.1930, Qupperneq 5
DÝRAVERNDARINN i9 andi vetri, og asahláka á, fannkyngi vetrarins aS leysa sundur en botnlausar krapablár i öllum lægö- um og slökkum, Hvorugur hefir víst taliö þá hvaö oft eg reyndi aö 'brjótast yfir kolmóörauöan krapa- elginn, ])ar sem vatnið haföi fundiö sér framrás úr slökkum og yfir þveran veginn, en þú kiptir mér til baka á taumunum þegar þú sást að ekki varö yfir komist. En hitt höfum við báöir munað, en lítið þakkað, að á Kárastöðum urðum við þá fegnastir hvíld á æfi okkar. --------- Margs er enn að minnast frá samveru- stundum okkar, vinur minn. En í kveld læt eg stað- ar numið og legg frá mér pennan. Á morgun sjá- umst við í síðasta sinni, og þá verður eflaust tæki- færi aö rifja upp fleira á meðan eg rölti með þig hinsta spölinn. 10. okt. 1915. Skuggi minn! í dag er 23 október 1916. Þú varst viljugur í fyrra haust að leggja af stað með mér síðasta áfangann. En svo undarlega breytt- ir þú út af vana þínum, sem hafðir verið lialtur í eitt ár, að‘ þú gekst óhaltur alla leið þangaö, er þér var ætlað að falla að síðustu. Eg stóðst ekki mátið ; þú vanst mig þá. Vegna þess lifðir þú ein- um vetrinum lengur; varðst 17 vetra í staðinn fyr- ir 16. Svo ertu nú aftur í dag leiddur út úr sama hest- húsinu og í fyrra. Og þótt eg væri langhryggur yfir að hugsa um dauða þinn, vildi eg þó sjá hvernig með þig væri farið; hvernig þú værir beizlaður og teymdur af stað í síðasta sinn. Eg J^ekki augun þín. Og síðasta augnatilliti þínu held eg að eg gleymi aldrei; ekki fremur en þegar eg Irjargaði þér upp úr Litlalæk. Það mun þykja ótrúlegt að satt sé, að Skuggi hafi í fyrra haust gengið óhaltur 3 stunda veg, en satt er þaö þó. Þaö er ekki óljúgfróðari maður til vitnis um það, en Magnús í Klausturhólum, sem var mér samferða þessa leið. En það sótti í sama horfið aftur, og var hann jafnan haltur þetta síð- asta ár, sem hann lifði. Skuggi var 52 þuml. á hæð, en nokkuð langur að hlutfalli. Bógagóður og sérlega hálsstoltur, lim- aður vel með stóra og beina hófa. Fax 0g tagl mik- ið og skifti faxið sér aftur á miðjan makka. Hann var örviljugur aö eðlisfari og sívakandi, en aldrei ofsafenginn eða frekur. Allan gang hafði hann með- skapaðan; þó var honum ljúfast að valhoppa'í lengri ferðum; það gerði hann svo undur þýtt, að hver maður, sem á bak honum kom, afþreyttist. Enda hafði hann það til, og þá allra helzt hjá mér, að leika sér að því alveg sjálfkrafa að skifta um allan gang, sinn spottan hvað, en alt þó táhreint og mjúkt, enda mun það flesta afþreyta bezt og að líkindum hestinn líka. Þó bar af, hvað skeið hans var mikið og gott og fram úr skarandi þýtt, og yar eins hann gæti altaf verið að bæta vií sig. Enda kom -það fyrir að hann rann á hreinum kostum fram úr klárhesti, sem drjúgur var þó tal- inn á stökki. Beztur var hann 14 vetra gamall. Þangað til fanst mér honum vera að fara frarn; einkum þó um dugnað allan og kostina. Hann var ljónstyggur alt til dauðadags. Náðist ekki nema í rétt eða húsi og gerði sér altaf manna- mun. — Óhappa-handtakið leiddi hann ef til vill til bana, en um: það er þessi saga: Það var kveld eitt, rétt fyrir þorrann, aö viö vorum einir á ferð í hríðarmuggu. Við vorum stadd- ir á mýri nokkurri nálægt Þóroddsstöðum, þar sem eg vissi ekki af neinni hættu, enda var mýrin öll svellrunnin og smærri tjarnir botnfrosnar. Alt i einu lá klárinn á kafi í dýi, sem hemað var yfir. Eg komst strax af baki, en hesturinn brauzt um með krafti miklum og vildi rífa sig upp úr. Það var þykkur ís alt í kringum dýið. Von bráðar náði hann sér upp úr að framanverðu og litlu síðar öðrum afturfætinum:, en þá var hinn eftir, blýfast- ur í forarleðjunni. Eg kallaði á hjálp, en enginn heyrði til mín, svo að hér var úr vöndu að ráða, ætti mér einum að auðnast a'ð bjarga hestinum upp úr forardýkinu. Tók eg þá beizlið, seildist með það niður fyrir hækilbeinið og togaði í. Við vorum báðir samtaka ])á, eins og stundum fyrri, enda stóð hann von bráð- ar á skörinni. En frá þeirri stundu var hann halt- ur á báðurn afturfótum þau tvö ár, sem hann lifði eftir það. Eg lét hann standa allan þann tíma brúk- unarlausan í högunum, gaf honum vel á meðan hann var í húsi og alt i þeirri von að hann næði sér aftur,

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.