Dýraverndarinn - 01.05.1965, Side 13
mengun sjavar og tilkynna henni, að S.D.Í. óski efLÍr
að gerast aðili að Norræna olíuvarnarsambandinu.
6. Fundurinn samþykkir að beina þeim tilmælum
lil háttvirts menntamálaráðherra, að hann láti fara
fram endurskoðun laga nr. 72/1954 um breytingu á
lögum nr. 28/1940 um friðun hreindýra og eftirlit
með þeim og í sambandi við þessa endurskoðun séu
höfð samráð við Lappv'ásenets renforskning í Sví-
þjóð. Fundurinn telur nauðsyn, vegna ýmissar óvissu
um hagi og líðan íslenzku hreindýranna, að fenginn
sé frá fyrrnefndri stofnun hingað út sérfræðingur,
sem ferðist um hreindýraslóðirnar og framkvæmi at-
huganir á hreindýrunum og því umhverfi, sem þau
dvelja á.
7. Fundurinn veitir stjórn S.D.Í. fulla heimild til
jress að ráða starfsmann og kaupa þá lögfræðilegu
aðstoð, sem samtökunum er nauðsyn að afla sér í
sambandi við kærumál.
8. Fundurinn mótmælir leyfisveitingum Mennta-
málaráðuneytisins til félaga eða einstaklinga til þess
að starfrækja dýrasýningar í fjáröflunarskyni. Ef
dýrasýningar eða dýraSöfn skulu leyfð, séu þau í
höndum opinberra aðila og þá aðeins eitt í hverjum
kaupstað eða sýslu.“
Allar þessar átta tillögur voru samþykktar í einu
hljóði.
Þá bar stjórnin fram tillögu í fimm liðum til
breytingar á frumvarpi til laga um búfjárrækt, sem
liggur fyrir Alþingi, og miðuðti þær allar að því að
gera forðagæzlu og eftirlit með fóðrun og líðan bú-
penings að virkum aðgerðum. Tillögum þessum var
fundurinn samþykkur, en þær lengu þó raunar fulln-
aðarafgreiðslu með samþykkt eftirfarandi tillögu frá
Oddi Andréssyni á Hálsi, sem sat um liríð á Aljúngi í
vetur og hafði lagt mikla rækt við að kynna sér allt,
sem lýtur að dýravernd í þeim frumvörpum, sem
þingið hefur nú til afgreiðslu:
„Aðalfundur S.D.Í., haldinn 22. nóvember 1964,
samþykkir að fela stjórn S.D.Í. að gera tilraun til að
ná fram nokkrum breyLingum á frumvarpi til laga
um búfjárrækt, sem nú liggur fyrir Alþingi.”
Þá voru og samþykktar einróma eftirfarnadi til-
lögur, sem Ingimar Bogason bar fram frá Dýravernd-
undarfélagi Skagfirðinga, en það er mjög virkt og
öflugt félag:
„1. Sjötta þing S.D.Í., haldið í Reykjavík 22. nóv.
Þarna eru Lappar i Svípjóð að reka saman hreindýr til
mörkunar.
1964, samþykkir að skora á háttvirt Alþingi, Jrað sent
nú situr, að nerna úr gildi undanþáguheimild í
Lögutn urn fuglaveiðar og fuglafriðun til fuglaveiða
á snöruflekum, livar sem er í landinu, og verði þar
með jæssa veiðar bannaðar með öllu.
2 .... að fela stjórn S.D.Í. að skora á bæjarstjórn-
ir allra kaupstaða að beita sér fyrir Jrví, að eigi sé
mönnum heimilt að hafa hunda og ketti í sinni um-
sjá, nenia greinilega merkta. Flækingsdýrum, sem
ekki njóta umönnunar, sé fargað af tilkvöddum
starfsmönnum viðkomandi yfirvalda.
3 .... að fela stjórn S.D.Í. að koma þeim tilmæl-
um á framfæri við alla sýslumenn og bæjarfógeta,
að séð verði um, að fyrir hendi séu viðhlítandi hús
til hundahreinsunar. í slíkum húsum séu básar, svo
að hægt sé að stía dýrum í sundur. Upphitun sé
nægilega góð í Jressum luisum, ef grípa jiart til upp-
hitunar í köldu veðri. Reynt sé eftir ntegni að fram-
kvæma hundahreinsun á Jreim tíma árs, sem veðr-
átta er mildust.
4 ....að íela stjórn S.D.Í. að vinna að Jrví við
viðkomandi yfirvöld að löggilda skuli Jiá menn, sent
falið er að aflífa dýr í opinberum sláturhúsum.
5 ....að beina þeim tilmælum til stjórnar S.D.Í.
að Dýraverndarinn verði sendur til allra sýslumanna
og bæjarfógeta til þess að þeir geti glöggvað sig á
málefnum dýraverndunarsamtakanna."
Um sitthvað, sem frarn kom í umræðum og erind-
um á fundinum, verður fjallað síðar hér í blaðinu.
D Ý RAV ERNDARINN
45