Dýraverndarinn - 01.11.1973, Síða 17

Dýraverndarinn - 01.11.1973, Síða 17
Eg gerist andamamma Hér d eftir verðnr birtur kafli úr bókjnni „Talað við dýrin“, eftir binn heimskunna vísindamann og dýrasálfrœðing Konrad Lorenz■ Einu sinni var ég að gera til- raunir með ungar stokkendur og reyna að finna ástæðuna til þess, að andarungar, nýskriðnir úr egg- mu, sem klekjast út í útungunar- vél, eru styggir og mannfælnir. Þessu er öfugt farið um grágæsar- unga. Þeir hlaupa í trúnaðar- trausti eftir fyrsta manni, sem á vegi þeirra verður, og telja hann rnóður sína. Stokkandarungarnir vddu aftur á móti ekki sjá mig. Þegar ég tók þá úr útungunarvél- mni og þeir voru enn óskrifað blað, hræddust þeir mig samt, flýðu og hnipruðu sig í næsta rnyrkraskoti. Hvernig stóð á þessum mun? Ég minntist þss, að einu sinni hafði ég látið Mexíkó- önd unga út nokkrum stokkand- areggjum og að litlu ungarnir vildu ekki þýðast hana sem móð- ur. Jafnskjótt og þeir voru orðnir þurrir, hlupu þeir brott frá henni og ég átti fullt í fangi með að safna þeim saman. Aftur á móti hafði ég eitt sinn látið feita, hvíta aliönd unga út stokkarandareggj- ur, og þessa fósturmóður höfðu ungarnir þýðzt, eins og hún væri þeirra rétta móðir. Þetta hlaut að stafa af kallhljóði hennar, því að í útliti var aliöndin ennþá ó- líkari stokköndinni en Mexíkó- öndin. Það, sem henni var sam- eiginlegt með stokköndinni, var kallhljóðið (en stokköndin er hinn villti forfaðir aliandarinn- ar), sem hafði haldizt svo til ó- breytt, enda þótt hún væri fyrir löngu orðin húsdýr. Af þessu dró ég þessa ályktun: Ég verð að garga eins og stokkönd til þess að fá ungana tii að fylgja mér. Ég kom þegar þessari hugsun minni í framkvæmd. Þar sem hópur hreinræktaðra stokkandar- unga átti einmitt að skríða úr eggjunum laugardaginn fyrir hvítasunnu, lagði ég eggin í út- ungunarvélina, tók því næst ung- ana í umsjá mína jafnskjótt og þeir voru orðnir þurrir og hermdi eftiir kallhljóði móður þeirra eins vel og ég gat. Þessu hélt ég áfram í margar kfukkustundir eða hálfan dag. Þetta bar ákjós- anlegan árangur. Litlu andarung- arnir báru fullt traust til mín, og þegar ég, sem hélt sífellt áfram að garga, fór með hægð burt frá þeim, fylgdu þeir mér fúslega eft- ir í þéttum hópi, alveg með sama hætti og ungar fylgja móður sinni. Með þessu hafði ég ótví- rætt fært sönnur á tilgátu mína. Ungar, nýskriðnir úr egginu, eru gæddir meðfæddum andsvörum við kallhljóði móðurinnar, en ekki við útliti hennar. Ailt, sem gefur frá sér hið rétta kallhljóð, telja þeir móður sína, hvort sem það er nú feit, hvít Peking-önd eða maður, sem er langtum stærri. StaðgengiU móðurinnar má þó ekki vra of hár. Ég hafði setzt í grasið hjá andarungunum, þegar ég hóf tilraunina, og mjak- aði mér sitjandi frá þeim til þess að fá þá til að fylgja mér. En dýraverndarinn 17

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.