Dýraverndarinn - 01.11.1973, Síða 18

Dýraverndarinn - 01.11.1973, Síða 18
Efst á baugi, um þessar mundir jafnskjótt og ég stóð upp og reyndi að fá þá til að elta mig, þegar ég gekk uppréttur, brugð- ust þeir, skimuðu leitandi í allar áttir, iiema upp til mín, og ekki leið á löngu áður en þeir hófu upp þetta nístandi tíst frávilltra andarunga, sem oftast er kallað „grátur“. Þeir gátu með engu móti sætt sig við þá staðreynd, að móðir þeirra væri orðin svona há. Ég varð því að setjast á hækj- ur og hreyfa mig í þeim stelling- um, ef ég vildi fá þá til að fylgja mér. Þetta var sem nærri má geta heldur óþægilegt. En ennþá meiri óþægindi bakaði mér ..sú stað- reynd, að andamóðirin gargar í sífellu. Ef ég hætti í hálfa mínútu að syngja „Kvegegegeg“, urðu hálsar unganna lengri og lengri (en það svarar tii þess, þegar barnsandlit „verður langt“ af undrun), og ef ég tók ekki undir eins til að garga aftur, fóru þeir að „gráta“ sárlega. Jafnskjótt og ég þagnaði, virtust þeir halda, að ég væri dauður eða þætti ekki lengur vænt um þá. Og það er nóg ástæða til þess að gráta! Reynið að ímynda yður þetta: að mjaka sér áfram á hækjum sín- um og garga í sífellu fullar tvær klukkustundir! í þágu vísindanna hef ég klukkustundum saman gegnt þessu lýjandi starfi. Á hvíta- sunnudag fór ég fram og aftur - á hækjum mínum og sígargandi - með dagsgamla stokkandarung- ana um vorgræna grasflötina í garðinum mínum. Ég var í sjö- unda himni yfir því, hve unga- hópurinn, sem vappaði eftir mér, hlýddi mér fljótt og vel. En einu sinni, þegar ég leit upp, sá ég, að mörg nábleik andlit störðu á mig yfir girðinguna. Þetta var þá Annir eru alltaf miklar hjá stjórn S.D.I., bæði við ýmsar kvartanir um slæma meðferð á dýrum víðs vegar um landið, og margvísleg samskpiti við erlend dýravernd- unarfélög. Vegna þess að mikið var kvartað yfir að enginn svaraði í síma S.D.Í á skrifstofunni á Hjarðarhaga 26, var gripið til þess ráðs, að fá símsvara á sím- ann. Símsvarinn gefur síðan upp símanúmer formannsins, Jórunn- ar Sörensen, og geta menn síðan leitað til hennar. Þannig standa málin nú með dýraspítalann, að beðið er eftir svari frá samtökum sveitarfélaga um þátttöku í rekstri hans. Reykjavíkurborg hefur boðizt til að gefa lóð undir spítalann og einnig borga grunn undir hann og allar lagnir að honum. Er það mjög þakkarvert. Nú ríður á mestu að þau bæjar- og dýra- verndunarfélög, sem standa eiga að rekstri spítalans, vinni vel saman og tryggi reksturinn fjár- hagslega. ferðamannahópur, sem horfði á hið óskiljanlega atferli mitt með skelfingu. Og það var ósköp eðli- legt: Þeir sáu þarna einungis stóran mann með alskegg, sem skreiddist á hækjum sínum um Sendimaður frá I.S.P.A. mun koma til íslands næsta sumar og kynna sér ástandið hér á landi í dýraverndunarmálum. Verður fróðlegt að fylgjast með athug- unum hans. Hann mun kynna sér sláturhús, dýragarða og aðra þá staði, sem dýr eru geymd á veg- um þess opinbera 0. m. fl. Flóamarkaður var haldinn þann 21. október s.l. að Hallveig- arstöðum. Ágóði var 180.000,00 krónur og verður honum varið til dýraspítalans. Stjórn S.D.l. þakk- ar af alhug öllum þeim, er gáfu muni á markaðinn, eða unnu við uppsetningu og afgreiðslu á mun- unum. Stjórn S.D.l. sótti um það til ríkisskattstjóra nýlega, að þeir er styrktu starf S.D.l. með fjár- framlögum, fengju að draga þau frá skattaframtali. Þessari mála- leitan var vel tekið og leyfið fékkst. Þessvegna, kæru velunnar- ar, styrkið okkur í starfi og lækk- ið um leið skattana. grasflötina í ótal bugðum, lítandi annað veifið um öxl og sígarg- andi. En ungana, sem hefðu get- að skýrt fyrir þeim málið, gátu þeir því miður ekki séð, því að þeir voru á kafi í grasinu. 18 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.