Heimir : söngmálablað - 01.01.1937, Blaðsíða 21
Erindi
15
andann — og svo áframhaldandi alla leið til liinna þjálf-
uðustu kóra, einsöngvara og einleikara. Friðrik Bjarna-
son liugsar um allt þjóðfélagið, aldur og þroskastig livers
og eins, og livarvetna eiga lög lians sömu vinsældunum
að fagna. Hafnfirðingar og karlakórinn „Þrestir“ hafa
verið lánsamir að eiga slíkl tónskáld að vini og velunn-
ara, og vonandi eiga þeir eflir að njóta lians enn um
aralugi.
Eg þakka öllum kórfélögum fyrir þann áhuga og vio-
Iéitni, sem sérhver hefir sýnt lil þess að liefja söngfélagið
„Þresti“ til vegs og virðingar og þá sérstaklega formanni
söngfélagsins, Guðmundi Gissurarsyni, fyrir hans brenn-
andi áhuga og skyldurækni. Loks þakka cg hlýleg um-
mæli — gjöf Þrasta til mín og aðra sýnda vinsemd. Það
er heitasta ósk mín og von, á þessum 25 ára minningar-
l’agnaði „Þrasta“, að framtiðin veiti þeim stöðugl nýja
krafta og nýjan þroska, svo að þeir megi sem hæst halda
sönggyðjunnar göfga merki. Og megi islenzk hljómlist i
hvívetna taka sem mestum vexli og fullkomnun. Og,
Hafnfirðingar, á ykkur lieiti eg, að taka höndum saman
um heill og gengi hljómlistarinnar — drottningarinnar í
riki listanna — en þó fyrst og fremst þess þáttar hljóm-
listarinnar, sem við í kvöld liyllum. Hafnfirðingar! Ég
óska ykkur þeirrar gæfu, að ykkur ávallt auðnist að hafa
sameinaða í lifandi stai'fi beztu söngkrafta Hafnarfjarð-
ar. Og megi í framtiðinni tiginn og göfugur „Þrastasöng-
ur“ ldjóma og ylja sem flestra hjörtu, meðan hyggður
er bærinn við Fjörðinn. Jón ísleifsson.
Siu'valdi Kaldalóns tónskáld.
Nýlega er kominn út eftir hann
vals í píanóútsetningu, sem
hann nefnir „Þrá“. Valsinn er
fallegur og „melódískur",
prýðilega raddsettur, og auti-
veldur að spila. í honum er
músik, og er hann líklegur til
þess að ná vinsældum. Enn-
fremur eru útkomin eftir hann
tvö einsöngslög við texta eftir
Davíð Stefánsson: „Lofið
þreyttum að sofa“ og „Mamma
ætlar að sofna“, bæði í sér-
prentun. Lögin eru bæði hug-
þekk.