Heimir : söngmálablað - 01.01.1937, Blaðsíða 27
Eyjan vor
21
„ÍSLENZKT SÖNGYASAEN“.
Framh. af bls. 17.
Það er þjóðsiður lijá okkur Islendingum, að get'a
auknefni. Söngvasafnið hefir verið auknefnt og kallað
„Fjárlögin“, eftir myndinni, sem er á kápunni. Það má
sennilega deila um ltápuna. En ég held að það megi full-
vrða, að Söngvasafnið er þau beztu fjárlög, sem út liafa
verið gefin á íslandi. Á þeim liefir ekki orðið tekjuhalli
heldur tekjuafgangur, þó að liann verði ekki allur talinn
i krónum og aurum. Einstakir söngvinir, og sönghneigð
þjóð, óska eflir áframhaldi á slíkum fjárlögum. Það á
vel við að sú ósk komi fram í þessu blaði. — Þó að mark-
aður fyrir nótnabækur sé hér ekki glæsilegur nú, leyfi ég
mér að vona að kostnaðarmaður þyrfti ekki að bera halla
af þeirri útgáfu. En allir sem að því ynnu myndu hljóta
þakklæti þjóðarinnar að launum.
Páll Halldórsson.