Heimir : söngmálablað - 01.01.1937, Síða 43

Heimir : söngmálablað - 01.01.1937, Síða 43
Fréttir 37 F RÉTTIR. Karlakórinn Kátir félaffar hélt söngskemtun i Gamla Bíó 5. febrúar síðastliðinn. Þetta er ungur kór, sem skipaður er nærri 40 kornungum mönnum með friskar og blæfagrar radd- ir. Kórinn hefir á tiltölulega skömmum tíma unnið bug á byrjunarerfiðleikunum og bar söngurinn á sér svip menning- ar. En söngnum er þó auðvit- að enn í ýmsu ábótavant. Má fyrst nefna skortinn á radd- magni. Kórinn á ekki til vcru- legt „forte“. Er sennilegt, að söngstjórinn muni liingað til hafa lagt meiri áherzlu á veik- an söng en sterkan, enda er það vitanlega ákjósanleg undir- staða, að kunna að syngja veikt. Af ungum mönnum, eklci sizt þeim, sem nefna sig „Káta félaga“, býst maður við frjáls- um og glöðuin söng. En ])ess- um vonum manna brugðust þeir. Er líklegt að þetta stafi ekki sízt af því, að söngstjór- inn haldi þeim á þessu stigi enn í föstum skorðum. Söng- stjórinn, Hallur Þorleifsson, hefir sýnilega unnið að kórnuni með mestu alúð og er söng- stjórn hans nákvæm og smekk- vís. Er líklegt, að þessi efni- lcgi kór nuini undir handleiðsln hans geta komizt i fremstu röð. Karlakórinn „Þrestir". Hafn- arfjarðarkórinn „Þrestir” er fyrsti utanbæjarkórinn, sem sungið hefir opinberlega í Reykjavík. Það cru liðin meira en 10 ár síðan. Þá var söng- • flokkurinn fámennur og radd- gæðin upp og ofan, en gat sér þó góðan orðstír. Kórinn átti 25 ára afmæli á þessum vetri og er því eldri en Reykjavikur- kórarnir. Við hann eru bund- in nöfn kunnra tónlistarmanna, og vil ég sérstaklega nefna tón- skáldin Friðrik Bjarnason og Sigurð Þórðarson. Nú er kórinn orðinn fjölmennur, skipaður 37 mönnum, flestir nýliðar. Gömlu söngmennirnir eru fallnir frá, farnir burtu eða þagnaðir. Raddgæðin eru enn upp og of- an. Innan um eru góðar radd- ir, en þörf væri á að vinsa úr kórnum lökustu söngmenn- ina, og fengist þá góður stofn. Einnig er þörf á að þjálfa bct- ur söngraddirnar, svo söngur- inn yrði fágaðri. Ef unnið er sleitulaust að þessu, hefir kór- inn skilyrði til l)ess að komast á bekk með okkar beztu kór- um. Söngstjórinn er Jón Isleifs- son söngkennari. Hann er á- hugasamur og ötull söngstjóri, sem veit hvað liann vill. En 'nokkuð mætti stundum deila um skilning hans á verkefnun- um, sérstaklega að þvi er hljóð- falli viðvíkur. M.A.-kvartettinn. Hann er skipaður fjórmenningunum Þor- geiri og Steinþóri Gestssonum frá Hæli, Jakob Hafstein stud. jur. og Jóni Jónssyni stud. theol. Kvartettinn hefir sung- ið mörg kvöld i Gamla Bíó fyr- ir fullu húsi og við mikinn

x

Heimir : söngmálablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.