Heimir : söngmálablað - 01.01.1937, Síða 45

Heimir : söngmálablað - 01.01.1937, Síða 45
Fréttir 39 söngkraftarnir hafi flestir ver- iö viðvaningar, eins og við hafi verið að búast. — Þetta er „kómisk ópera“ eða gaman- söngleikur. Sumár kunna að segja, að efnið sé léttmeti, en það á ekki við að nefna það því nafni, því enda þótt nú- tímamönnum kuriiii að þykja fyndnin úrelt og þráðurinn hálf hjákátlegur, þá þótti þetta gott á þeim tíma, er óperan var samin, og eru aðrar óper- ur frá þeim tíma sízt betri að þessu leyti. Höfundur textans hefir því náð tilgangi sínum. Músikin er ekkert léttmeti, þótt hún sé létt og glaðlynd. Höf- undurinn er að vísu ekki neitt stórmenni á sviði tónlistarinn- ar, hann siglir i kjölfar sinna miklu fyrirrennara og samtíð- armanna, oftast nær smekklega og alltaf af mestu kunnáttu, og eru kaflar af ósvikinni fegurð i óperunni. — Operusöngvar- inn er i senn söngmaður og leikari. Þetta fer ekki saman hjá öllum. Sumir söngmenn- irnir höfðu of veigalitlar radd- ir í hlutverk sín og nutu sín því fyrst og fremst sem leik- arar, eins og Lárus Ingólfsson. Aðrir reyndust harla litlir söngmenn, og engu meiri leik- arar. Sigurður Markan hefir allmikla rödd og Arnór Hall- dórsson allmikla bassarödd, mjúka og hreimfagra. Var töluverður veigur í söng þeirra. Það munu ekki skiptar skoð- anir þeirra, er á lilýddu, að Pétur Jónsson óperusöngvari hafi sameinað i sér þetta tvennt: söngmanninn og leik- arann. Allur landslýður þekk- ir hans voldugu hetjurödd, en allir hafa ekki gert sér ljóst, að það er röddin og leikurinn, sem hefir gert hann að hinum mikla óperusöngvara, sem ár- um saman söng við ágætan orðstír veigamikil óperuhlut- verk á mörgum aðalleiksviðum Þýzkalands, meðan hann var á bezta skeiði. Reykvikingum gafst nú í fyrsta sinn kostur á að heyra hann og sjá á rétt- uni veltvangi — i óperunni — og mun hann hafa vaxið, en ekki minnkað við þau kynni. Söngur hans og leikur í hlut- verki Ahel Abenrade hárskera var nýr sigur fyrir hann, og var honum tekið með fádæma hrifningu að makleikum. Af kvenfólkinu hafði Sigrún Magn- úsdóttir mesta hlutverkið með höndum. Hún hefir mikinn, bjartan sópran, beitir honum vel, og leikur liennar er fjör- legur og skemmtilegur. — Það hefir óefað kostað mikla vinnu og þrautseigju, að hrinda þessu verki af stað, og hýst ég við, að hér sé enginn maður, sem hefði haft atorku til slíkra at- hafna, nema dr. Franz Mixa. Honum ber að þakka það, að sönglegur árangur varð allgóð- ur, eftir efnum og ástæðum, sérstaklega hvað allt varð hljóðfallsbundið. Hljómsveit- inni er alltaf að fara fram, og sér í lagi bar á því, live leik- ur hennar nú var hljómbetri og ójivingaðri en áður. Hlut- verk leikstjórans, Bjarna Guð-

x

Heimir : söngmálablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.