Nýtt land - 01.01.1936, Síða 4

Nýtt land - 01.01.1936, Síða 4
2 N Ý T T L A N D ings, þekkingar, áræðis og vongleði um bggðir landsins og fiskimið, alstaðar þar, sem íslensk alþgða gengur að verkum sinum. „Nýtt land" vill gefa lesendum sínum kost á að fræðast um heiminn, svo mjög sem rúm ritsins leyfir. Hvarvetna gerast nú þeir atburðir, er máli skipta fgrir hag og heill íbúa þessa lands. Hvarvetna heyja geyst félagsöfl baráttu, og úrslit baráttunnar verka á daglegt Hf og afkomu almennings hér, eins og hann væri næsti nágranni þeirra, er að viðburðunum standa. Til þess eru víti að varast, reynsla að af henni megi læra. t þroskuðum skiln- ingi almennings á heimsviðburðum, og glöggri, hleypidómaknisri vitneskju um þá, felast fyrirheit um, að afstýrt verði mörgum voða, girt fyrir margs- konar böl. „Nýtt land" vill, með fræðslu sinni um heimsviðburði, gera sitt til að forða islensku þjóðinni frá þeirri sjálfslægingu, þeirri afmáun mann- legs virðuleiks, sem orðið hefir hið dapurlega hlutskipti hinna mörgu þjóða, er lagt hafa sig blindandi i fjötra skef jalauss einræðis. „Nýtt land" vill vera skeleggur vörður gegn þeirri hrörnun menningarinnar, þeirri nppgjöf mann- legra vitsmuna og drengskapar, er slíku fær valdið. Af þessum sökum mun „Nýlt land" einnig gera sér far um að kynna lesendum sínum þá félagslegu starfsemi hér á landi, sem undanfarna ára- tugi hefir hnigið að þvi að reisa við úr lægingu og réttleysi hag og lífskjör almennings til sjávar og sveita, þær stefnur í stjórnmálum og menningar- málum, sem miðað hafa að því að búa þjóðina þeim manndómi og þroska, sem þróast í skjóli þelckingar og lífsöryggis. Sú barátta, sem undanfarna áratugi hefir verið háð um þessi mál, er traustasti leiðarvísirinn um mat á fortíðinni, um réttmæt viðhorf alþýðu manna til baráttu yfirstandandi augna- blika, og til skilnings á viðfangsefnum komandi ára. Þess vegna verða jafn- aðarstefnan, starf og stefna alþýðusamtakanna, Alþýðuflokksins, fyrirætlanir hans og hugsjónir, málefnasvið, sem „Nýtt land" viTI leitast við að skýra og kynna. Ýmsir af ritfærustu mönnum þjóðarinnar og knnnnstu og vinsælustu skáldum hennar hafa heitið „Nýju landi" stuðningi sínum. Er það því von vor, að lesendur vorir eigi þess nolckurn lcost, að kynnast því nýjn frá fyrsttí hendi, sem vel er hugsað og ritað með þjóðinni. Svo mun og „Nýtt land" gera sér far um að veita lesendum sínum nokknrt yfirlit um það, sem einkum er ofarlega á baugi t listum, vera dálitið sýnishorn þess gróanda, þeirrar nýsköp- unar, sem nútímamenning þjóðarinnar í víðustu merkingn, ber í skauti sínu. „Nýtt land" óskar öllum lesendum sinum, styrktarmönnum og kaup- endum gleðilegs drs.

x

Nýtt land

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt land
https://timarit.is/publication/606

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.