Nýtt land - 01.01.1936, Blaðsíða 22

Nýtt land - 01.01.1936, Blaðsíða 22
20. N Ý T T L A N D Sigurður Einarsson: |N MEMORIAM. Rseða flutt í Útvarpið 7. janúar 1936. Þessi stund er lielguð minningu mannanna, sem urðu úli í óveðrinu 4 .nóvember, mannanna, sem fórust í ofviðrinu 14.—-15. desember og fólks- ins, sem fórst i brunanum i Keflavík 30. des. og aðstandendum og vinum alls þessa fólks. Með atliöfn þessari. vill ríkisútvarpið láta í ljósi innileg- ustu lijartans samúð sina með öllum þeim mörgu, sem þá biðu svo þunga barina, um leið og það vill lála þakk- læti vor allra, fyrirbænir og vinar- kveðjur óma yfir til þeirra, sem kvatt bafa þenna heim með svo sviplegum atburðum. Og vér erum þess fullviss- ir, að sú samúð, sem ríkisútvarpið þannig vill láta í té, hún er tjáð í nafni allrar þjóðarinnar og fyrir munn bennar. Hinn 4. nóv. síðastliðinn vorum við öll, sem þetta land byggjum, ennþá einu sinni minnl á það á hryggilegan liátt, bve skammt er fótmál milli feigð- ar og lífs, þar sem kjör manna krefj- ast þess, að barist sé fyrir daglegu lirauði við hin geystu öfl náttúrunn- ar. Þrír æskumenn leggja af stað frá beimilum sínum, liressir og glaðir, til að gegna liinum einföldu skyldum hversdagslifsins. Þeir koma aldrei iífs lieim framar. Banvæn krapabríðin skellur með ofsaveðri yfir landið og í grárri muggu þessarar helbriðar týn- ir hugur vor sporum þessara æsku- manna. Aðeins það vitnm við, að þeir verða viðskila, að liver um sig geng- ur að lokum einn og óstuddur að hin- um dimmu dyrum, þar sem öll lífsins sund lokast og dauðinn tekur við. Svo þegar dagur úr dökkvanum rís, finn- ast þeir dánir, og sorgin er sezt að með ástvinum þeirra á Úlfsdalabæj- unum. Eg veil mjög vel, að liugur allra Islendinga livarf þá lil þessara beimila, sem beðið liöfðu svo sáran missi, og eg veit líka, að það var marg- ur, sem þá bað lieitt og innilega á þessa leið: Guð gefi, að þetla verði síðasta áfallið á vetrinum. En skannndegið þokast yfir landið, eins og það hefir gert í þúsund ár, það verður svartara og svartara, veðrin viðsjálli og hættulegri. Og dagana 14. —15. desember lýstur dauðinn enn sprota sínum á bygðir þessa lands. — 25 menn farasl, ílestir í sjó. Eins og feiknþrunginn klukkna- bljómur, líða tíðindin út yfir landið, tíðindin um það, bvernig sigð dauð- ans kvislaði mannslíf eftir mannslíf af hinuin greinafáa meiði þjóðar vorr- ar. Tíðindin frá Vestmannaeyjum, tið- indin frá Sauðárkróki, tíðindin frá Sviða, tíðindin frá Grund við Sval- barðseyri, tíðindin frá Ytra-Felli, tíð- indin frá Grænumýrartungu, frá Ell- iðaey, frá Arnórsslöðum og Hamri á Barðaströnd, frá Akranesi, frá Látr- um á Látraströnd. Þau komu livert á fætur öðru, eins og högg,. sem gerðu hugann magnþrota, þangað til bann orkaði engu öðru en því, að biðja: Guð hjálpi ykkur öllum, sem nú eig- ið um svo sárl að binda,. Það er mælt, að það þurfi mikið að ganga á, lil þess að vekja okkur íslendinga upp úr iiversdagsdofa tilfinningaleysisins, og sennilega er það, því miður, að ein-

x

Nýtt land

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt land
https://timarit.is/publication/606

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.