Nýtt land


Nýtt land - 01.01.1936, Qupperneq 27

Nýtt land - 01.01.1936, Qupperneq 27
N Ý T T L A N D 25 Þorleifur Þorleifsson, verkamaður, (féliirðir). Runólfur Þórðarson, verkamaður, (f j ármálaritari). Árni Jónsson, verkamaður, (aðstoðarmaður). Höfuðviðfangsefni félagsins hefir frá uppliafi verið það, að lialda kaupgjaldi verkamanna svo liátt uppi, sem mátt- ur samtakanna leyfði. Foruslu Dags- brúnar í þessu máli hefir ekki aðeins liaft áhrif á kaup félagsmannanna sjálfra. Kaup það, sem Dagsbrún hef- ir sett eða samið um á hverjum tíma, hefir yfirleitt verið greitt jafnt utan- félagsmönnum sem félagsmönnum í Reykjavík. Kaup Dagsbrúnar liefir einnig verið sá mælikvarði og trausti baklijallur, sem öll önnur verklýðsfé- lög i landinu hafa stuðst við, að meira eða minna leyti. Er óhætt að fullyrða, að áhrif Dagshrúnar hafa í þessu falli náð til alls verkalýðs í landinu, dag- launamanna í landi, verkakvenna, sjó- manna og jafnvel iðnaðarmanna. Við stofnun Dagshrúnar voru lög félagsins i tvennu lagi, hin eiginlegu félagslög með þeim ákvæðum, sem ekki virðist þurfa oft að breyta. I öðru lagi ákvæði um kaupgjald og önnur vinnuskilyrði, sem lcölluð voru auka- lög. f fyrstu aukalögunum var dagkaup ákveðið 25 aurar um klst. yfir vetr- armánuðina (1. okt. til 1. april), en 30 aurar yfir aðra mánuði ársins. Næstu árin á undan hafði kaupið yfir vetrarmánuðina verið 18—25 aur- ar um klst. og yfir sumarmánuðina 25—30 aurar. Um verulega lcauphækk- un var þvi eklci að ræða, heldur öllu fremur jafnara ltaupgjald en áður var, enda har ekki á verulegum mótþróa , atvinnurekenda gegn þessum ákvæð- um félagsins. Eftir 2 ár (1908) var sú hreyting gerð á þessu, að dagkaup skyldi vera 30 aurar um klst. allt árið. Stóð svo til 1913, á útmánuðum, en þá var kaupið liækkað upp i 35 aura. Var ]>að í síðasta sinn, sem lcaup var á- kveðið með aukalögum. Eftir það voru gerðar fundarsamþykktir um kaup- breytingar og þær auglýstar í blöð- uni, eða að kaup var ákveðið með samningi við atvinnurekendur. Kauphreytingin 1913 mætti miklum mótþróa frá sljórn liafnargerðarinn- ar, og lá.við verkfalli út af því. Þó náðist samkomulag Um kaupið og var gerður skriflegur samningur um það og önnur vinnuskilyrði við liafnar- gerðina. Það er fyrsti kaupsamningur, sem Dagsbrún gerði. Eftir að heimsstyrjöldin hraust úl, hækkuðu allar lífsnauðsynjar í verði. Þó varð ekki hreyting á dagkaupi verkamanna fyrr en í júlí 1915, að það var fært upp í 40 aura og árið eftir upp í 45 aura um klst. f ársbyrj- un 1917 varð dagkaup 60 aurar og hélst óbreytt til ársloka 1918. Þetta kaup svaraði þó hvergi nærri til þeirr- ar dýrtíðar, sem þá var orðin. Um sumarið 1919 fór Dagsbrún þess á leit við Félag atvinnurekenda, að kaupið væri hækkað upp í kr. 1.15. Atvinnu- rekendur töldu kröfuna of háa, bor- ið saman við kaup 1914. Eftir allmik- ið þref náðist samkomulag við at- vinnurekendur um kr. 1.16. Gilti sá samningur til ársloka 1920, en sam- kvæmt honum gat kaup á því tímabili hækkað eða lækkað í hlutfalli við dýrtíð.

x

Nýtt land

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt land
https://timarit.is/publication/606

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.