Nýtt land - 01.01.1936, Blaðsíða 15

Nýtt land - 01.01.1936, Blaðsíða 15
N Ý T T L A N D 13 Bresíur — og nú þeytti hún brotun- um í andlitið á Ólafi Jónssyni, út- gerðarmani, sem átti stafinn! Rikka rauða reri til öllum efri kroppnum oghafði handleggina kross- lagða á brjóstinu, eins og til trygging- ar þvi, að það springi nú ekki alveg utan af hennar geðshræringum. Og andlitið, sem vanalega var dimmrautt, var nú náfölt, nema hvað rauðir díl- ar voru í kinnunum. Var það nú til- dragelsi! Og þarna vék Hóla-Jóna sér við, greip i höndina á Draugafelli og brunaði af stað. Hún sté þungt nið- ur, og kjólslitrin lufsuðust ýmist frá eða að mórákóttum og vöðvahnykluð- um herðunum. Þar hvarf hún fyrir húshornið, og Rikka tók andann á lofti. Svo leit hún á ólaf .Tónsson útgerðar- mann ,sem stóð þarna og starði á eft- ir Hóla-.Tónu — með blóðið streymandi úr hrufli á hægri kinninni. Hann brá skyndilega við og rauk að strákunum með kreppa hnefa. Þetta voru hans eigin strákar. Þeir höfðu legið graflívr- ir, meðan Hóla-.Tóna var á vígvellin- um, en nú voru þeir búnir að snúa sér við og voru að þurka með höndunum það mesta úr svíðandi andlitunum. — Pillið ykkur á fætur, sagði Ólaf- ur Jónsson — og smánist þið inn og þvoið ykkur! Svo ætti að hýða vkkur hæls og hnakka á milli, fyrir bölvað- an aumingjaskapinn! IV. Hóla-Jóna fór með drenginn heim. Hún þvoði honum vandlega í framan og bar joð á skeinurnar á honum, svo að hann var allur gulflekkóttur, þegar hún var búin. Hún sagði ekki orð, og hann steinþagði. Hún settist á rúmið sitt, og drengurinn stóð undirleitur á miðju gólfi. Hóla-Jóna lét hendurnar hvila í keltunni. Hún horfði á gólfið, sem var nýþvegið, en með malarýring hér og þar. Allt í einu rétti Drauga- fellir úr sér, kreppti hnefana og æpti: — Þeir ljúga því öllu saman! Ég skal .... skal drepa þá! — Þá stóð Hóla-Jóna á fætur. Hún gekk þegjandi að drengnum, vafði handleggjunum yfir um hann og þrýsti honum að sér, — fast, svo fast, að það var eins og í hryggspennu við 14 ára ferliki. Og Draugafellir stóð eins og stirðnaður til að byrja með. Hva — hvað var þetta? Þetta hafði aldrei kom- ið fyrir áður. Svo minnti það hann á stelpu, sem hafði rokið á hann og kysst hann úti í porti. Og hvað hafði hann gert? Hann hafði sett linefann fyrir brjóstið á henni og fleygt henni aftur á bak — og bölvað .... Og nú fór hann að brjótast um. Hann var illur — fok- illur. Það var verið að gera honum skömm. Hann kreppti hnefann og keyrði hann milli lierðanna á þessum kvenmanni. Og hún kiknaði við, en sleppti ekki — og hún hvislaði heitt og skjálfandi: — Elsku drengurinn hennar móður sinnar! Það var eins og drægi allan mátt xir Draugfelli, og hann varð á svipinn, eins og hann væri að hlusta eftir einliverju óljósu langt, langt i burtu — einhverju, sem kæmi einkennilega við hann, en hann hefði aldrei heyrt áður. Og Hóla- •Tóna fór með hann yfir að rúminu, eins og liún væri að hrekja á undan sér dauðan hlut. Þar settist hún með hann og þrýsti höfðinu á honum upp að votri kjótuskunni .... Og skyndilega hall- aði Draugafellir höfðinu óþægilega fast upp að brjóstinu á henni — og

x

Nýtt land

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt land
https://timarit.is/publication/606

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.