Nýtt land - 01.01.1936, Blaðsíða 30
28
N Y T T L A N I)
lagsfundir þessi 30 ár. Auk þess hefir
félaijið alloft gengist fyrir almennum
fundum verkamanna.
í uppliafi var fólagsmönnum skijit
í deildir og deildarstjóri settur yfir
hverja þeirra. Helzt ]>að enn. Hafa
venjulega verið um 20 manns í deild.
Fjöldi nefnda liefir starfað í félag-
inu á hverju ári, hæði fastanefndir
og nefndir kosnar við sérstök tæki-
færi. Þvngst hafa þó félagsstörfin
hvilt á stjóm félagsins. Auk þess
sem stjórnendur hafa setið félags-
fundi, hafa þeir liaft fjölda stjórnar-
funda, stundum helmingi fleiri á ári
en félagsfundir voru. Þá liafa sumir
menn úr stjórninni eytt mjög miklum
tima í þarfir félagsins utan funda, sér-
staklega við samninga um kaup og
eftirlit með þvi, að ekki væri unnið
undir kauptaxta félagsins.
Þessir hafa verið formenn i Dags-
brún:
Héðinn Valdimarsson ......... 12 ár
Sigurður Sigurðsson .......... 5 —
Pétur G. Guðmundsson ......... 4 —
Jörundur Brynjólfsson ........ 3 —
Ágúst Jósefsson .............. 2 —
Árni Jónsson ................. 2 —
Magnús V. Jóhannesson......... 2 —
Þessir 10 menn hafa lengst setið í
stjórn Dagsbrúnar:
Jón .Tónsson (Bræðrabst. 21) . . 14 ár
Héðinn Valdimarsson......... 12 —
Pétur G. Guðmundsson ....... 9 -—
Sig. Guðmundsson (Freyjug.) . . 9 —
Jón Jónsson (Kárast. 7) ....... 9 —
Kjartan Ólafsson . . •..... 8 —
Agúst Jósefsson ............... 7 —
Guðm. ó. Guðmundsson .......... 7 —
Helgi Björnsson ............... 6 ■—
Þorleifur Þorleifsson ......... 6 —
Fræðslunefnd (ein af fastanefndum
félagsins) iiefir gengist fyrir ýmiskon-
ar fræðslustarfsemi í félaginu. Auk fé-
lagsmanna hafa fjöldamargir utanfé-
lagsmenn flutt fræðandi erindi á fé-
lagsfundum.
Nánari greinargerð um starfsemi
Dagsbrúnar er að finna i afmælis-
hlaði félagsins, sem út kom 26. jan.
þ. á. (Fylgirit Alþýðublaðsins).
Pétur G. Guðmundsson.
Algeng þýsk gamansaga.
Hitler er dáinn, kominn til himnarikis.
Mætir hann þar Móse á göngu og segir:
Sleppum nú öllu Gyðingahatri, og röbbum
saman, þvi að báðir vorum við miklir for-
ingjar. Móse: Mín er æran. Ilitler: Heyrðu,
lagsi, logaði nú annars í þessum þyrni-
runni, eða kveiktir þú í honum sjálfur.
NÝTT LAND kemur út í sex heftum á ári, 24 lesmálssíffur hvert hefti.
Árgangur ritsins lcostar 5 krónur. 1 krónu hvert hefti i lausasölu. — Grein-
um og erindum til ritsins her aff koma til Sigurffar Einarssonar, Box 143,
Rvík. — Afgreiðslu annast Zophonías Jónsson, Óðinsgötu 14, Reykjavik,
Box 143. — Prentað i Félagsprentsmiðjunni.