Nýtt land - 01.01.1936, Side 24

Nýtt land - 01.01.1936, Side 24
22 N Ý T T L A N D og bróðurþels, en þó er eg viss um það, að öll íslenska þjóðin telur sér skylt að tjá aðstandendum þeirra, sem hér Iiafa farist, innilegustu og dýpstu samúð, og telur sér meira að segja skylt, að sjá um það, að áliyggj- an fyrir brýnustu daglegum lífsþörf- um þurfi ekki að bætasl ofan á liina þungu liarma lijartans. Þess vegna vil eg biðja yður öll, góðir íslending- ar, sem mál mitt Iieyrið, að bregðast drengilega við, livar sem þér verðið varir við einliverja starfsemi til þess að koma liinu syrgjandi fólki lil að- stoðar. Það er heilög skylda mín og þin og okkar allra. Við segjum mist — og vist er óend- anlega mikið mist. En einu sinni stóð íslenskur maður yfir syni sínum, sem hnigið hal'ði niður örendur úti á akri. Hann sagði: Ef pú liorfir í gröf, villt ei himinn sjá, því er hug þínum missirinn sár. Er það bótalaust böl, fyrst að bara ég á, þessi blóm, þessi IjóS, þessi tár. Og með þeirri ró lók Steplian G. Step- hansson sonarmissinum, og þeirri karl- mennsku, að hann knúði sjálfan sig til að sigrast á honum sem bólulausu böli. Á meðan bjartað var alll i sár- um, leilaði hann sér svölunar við blóm sín, ljóð sín og tár. Þegar frá leið, ól hann hug sinn upp til dáða og hreysti, til mannúðar og kærleika, við endur- minninguna um hið elskaða barn sitt. Þannig varð lionum harmurinn viskulind og sorgin eldur, sem skírði sál hans til nýrra mannkosta. Og sá er gæfumaður mitt í harmi sínum, sem svo kann að taka sorgum. Hann fær að lokum sama tóninn í sálina eins og Þorgeir í Vík: „Mörgu ég tap- aði, mikið ég vann, máske var það mér þó hest, eins og hann ókvað, minn ei- lífi Guð.“ Eg vildi vona, að svo mætti yður takast að ávaxta sorgir yðar til göfgi og þroska. Þess get ég beðið yð- ur best til banda úr því, sem nú er komið. Það er best að segja liverja sögu eins og hún er, ekki sist á alvöru- stund eins og þessari. Min augu sjá skemmst allra mannlegra augna inn í heiminn, sem tekur við bak við dauð- ann, og lolning min fyrir sorg yðar er meiri en svo, að eg hafi kjark til að fara að lijala um þá huggun, sem eg veit ekki liver er. En eg vildi á þess- ari stúndu mega í nafni allrar þjóð- ar minnar vísa j'ður á mikla fjársjóðu innilegrar samúðar, drengilegrar hjálpar og kærleiksríkrar vináttu. Eg vil biðja þess, að þér eigið hvarvetna að mæta slíku, livar sem er og live- nær sem er á æfinni. Og eitt veit eg, að þegar þessu lífi lýkur, þá er öll- um þrautum lokið, allri sorg, allri ang- ist, allri kvöl. Þegar dregur að lokum liinnar síðustu baráttu, verður líf okk- ar allra, „eins og lílill lækur ljúki sínu hjali, þar sem lygn i leyni, ligg- ur marinn svali.“ Vér höfum líka leyfi til að vona, vona á sannleika þessara orða: Iláa skilur lmetli liimingeimur, blað skilur l)akka og egg, en anda, sem unnast, fær aldregi eilílð aðskilið. Þau eru aðeins fagur skáldskapur fyrir sumum, en þau eru einn dýpsli sann- leikur lífsins, þeim, sem eiga sál sína hálfa og ást sina alla i heiminum bak við skilrúm dauðans. Og í nafni vor allra, í nafni þjóðar minnar, sem svo mikils liefir misst, vil eg hérmeð færa öllurn hinum látnu ástarþökk vor allra og hinnstu vinar-

x

Nýtt land

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt land
https://timarit.is/publication/606

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.