Nýtt land - 01.01.1936, Side 29

Nýtt land - 01.01.1936, Side 29
N Y T T L A N D 27 á iðgjöldum eða fulla eftirgjöf. Þá hef- ir fátækum mönnum oft verið gefið eftir að greiða iðgjald. Eftir að iðgjöld hækkuðu, jukust tekjur þess stórum og þar með mögu- leikar til margskonar starfsemi. Á fyrsta ári félagsins var stofnað- ur stvrktarsjóður innanfélags. Var fé- lagsmönnum heimilt að taka þátt i honum gegn lágu aukagjaldi árlega. Árið 15)10 var þessi sjóður aðgreind- ur frá félaginu og gerður að sérstakri stofnun, og liefir verið það síðan. Auk þess greiddi félagið jafnan nokkurt fé úr sjóði sínum á liverju ári til styrktar nauðstöddum mönnum. Fyrsta árið gengu i Dagshrún ná- lægt 600 manns. Eftir ])að jókst fé- lagsmannatalan hægt og var aðeins 867 í árslok 1929. Misjafnt var þetta nokk- uð eftir árum, fækkaði sum árin, en fjölgaði önnur. Utanfélagsmenn fengu að jafnaði greitt sama kaup og félags- menn. Varð þvi lielst til mörgum að spara við sig iðgjaldagreiðslu til Dags- brúnar. Stjórnmálaskoðanireðaflokks- fvlgi átti lika hlut að þessu máli. Það má því telja einn af merkustu viðburðum í sögu Dagsljrúnar, þegar hún fann sig nógu öfluga til þess að banna félögum sínum að vinna með utanfélagsmönnum. Samþvkkt um það var gerð á félagsfundi 16. febr. 1929. Upp frá þeirri stundu streymdu verka- menn inn í félagið. í árslok 1935 eru félagsmenn taldir 1940. t þessu stutta vfirliti er þess enginn kostur, að telja upp allt, sem Dags- brún h’efir haft með höndum. En það er orðið æði margt, annað en kaup- gjaldmál. Skal hér i fám orðum dre])- ið á nokkur helztu atriðin. Dagsbrún tók þátt í stofnun Verka- mannasambands íslands 1907, og Al- þýðusambands íslands 1916. Hún hef- ir alla líð síðan átt álirifsmikla menn á sambandsþingi, í sambandsstjórn og fulltrúaráði verklýðsfélaganna. Félag- ið hefir jafnan átt einna drýgstan þátt í stjórnmálastarfsemi Alþýðuflokks- ins í Reykjavík. Við undirbúning bæjarstjórnarkosn- inga 1910 ákvað Dagshrún að liafa sérstakan lista i kjöri. Úr þvi varð þó ekki, því samningar tókust við landsmálafélagið Landvörn um sam- eiginlegan lista, með því skilyrði, að formaður Dagsbrúnar (P. G. G.) yrði efsti maður á þeim lista, og liáði i.n kosningu. Nokkrum sinnum hefir félagið tek- ið þátt í vörupöntunum fyrir félags- menn, kolum o. fl. Dagsbrún gaf út Verkamannablað- ið 1913, og hún hefir stvrkt blaðið Dagsbrún og Alþýðublaðið síðar. Þá hefir Dagsbrún, með ríflegum fjárframlögum, átt drjúgan þátt í þvi, að hægt var að ráðast i byggingu Al- þýðuhússins við Hverfisgötu. Dagsbrún hefir haldið margar hluta- veltur til ágóða fyrir styrktarsjóð sinn. Auk þess afmælishátíðir og fleiri skemmtisamkomur. Til styrktarsjóðs verkamanna- og sjómannafélaganna hefir Dagsbrún greitt allmikið fé, enda hafa félags- menn orðið mikilla hlunninda aðnjót- andi úr þeim sjóði. Erfðafestuland tók Dagsbrún á leigu 1912, og höfðu félagsmenn af því nokkur not. Þetta land var tekið af félaginu 1933, gegn endurgjaldi. í starfsemi félagsins hafa öll meiri- háttar mál verið ákveðin á félagsfund- um. Alls hafa verið haldnir 413 fé-

x

Nýtt land

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt land
https://timarit.is/publication/606

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.