Hlín - 01.01.1930, Blaðsíða 56
54
Hlin
framleitt ullarband handa okkur, og reka af höndum
okkar alt útlenda garnið? Ullin okkar er hlýrri en hin
útlenda, og ekki fæst svo mikið fyrir hana nú, að það
sje þessvegna frágangssök að vinna hana í landinu.
Menn hafa eflaust veitt því eftirtekt, sem skoðuðu
sýninguna, eða lásu skrána, að á sýningu þessari var
ekkert frá skólum, alt var það vinna alþýðunnar, án
mikilla eða almennra áhrifa frá skólum.
Það var gert með vilja að útiloka skólana frá þess-
ari sýningu. Ef þeir hefðu verið með, var sýningin orð-
in of stór og um leið ósamstæð. Skólasýningar á að
hafa sjer, og þær eiga að sjálfsögðu rjett á sjer eins
og hinar. í raun rjettri er það þegar fyrir löngu við-
urkent, með því að hver skóli hefur jafnan sýningu á
hverju vori að enduðu námsskeiði.
Stjórn Kennarafjelags íslands hefur undanfarandi
ár haft það á oddinum að halda sýningu á skólabarna-
vinnu fyrir land alt. En þegar skólasýning verður
haldin, ætti hún að ná til allra skóla og námsskeiða sem
njóta styrks af opinberu fje.
Skólasýningar þarf að halda á 10 ára fresti eins og
hinar, og þá fyrstu ætti að halda að 5 árum liðnum, og
fara nú þegar að búa sig undir hana, það veitir ekki
af tímanum. — Kvennaskólarnir hafa í rúm 50 ár kent
handavinnu hjer á landi. Það er gaman að sjá það, sem
þeir hafa fram að bera. Húsmæðraskólarnir hafa líka
handavinnu á sinni stefnuskrá, og hjeraðsskólarnir
hafa þessi ár kent mikla handavinnu og unglingaskól-
ar sumir kenna verklegt.
Nú er í ráði að skólastjórar lijeraðsskóla og hús-
mæðraskóla hafi fund með sjer á Eiðum að sumri,
ættu þeir þá að taka þetta mál til athugunar. Kennara-
þingið sömuleiðis.
Þessi sýning yrði ekki umfangsminni en hin al-
menna, ætti líklega að hafa þá tilhögun, að hver skóli