Merki krossins - 01.01.1926, Page 15
PIUS PÁFI XI.
sendir Sínum elskulega syni kveðju og postullega blessun.
Fyrir umsókn kardínála prefekts fyrir Congregatio Fidei Propagandæ,
hefir Oss verið kunngjört, að þú, fæddur í hinu norðlæga Thule, hafir í
tuttugu ár verið hinn eini kaþólski íbúi allrar eyjunnar, og hafir haldið
guðrækilega hina gömlu kaþólsku kenningu; þar að auki, að þú hafir veitt
kaþólska trúboðinu mikla aðstoð og hafir með eftirbreytnisverðu veglyndi
hjálpað þeim sem prédika Guðs orð. —
Oss er þá velþóknanlegt að aðhyllast umsókn þessa purpuraklædda
prins hinnar heilögu rómversku kirkju og að launa áhuga þinn og trú-
mensku þína með þeim heiðri, sem þau eiga skilið og sem á að votta
ánægju Vora og gleði í þinn garð.
— Þess vegna með þessu skjali ert þú kjörinn og gerum Vér þig
Riddara af orðu hins heilaga Gregoríusar mikla, í stétt leikmanna og
teljum Vér þig framvegis í þessum heiðarlega riddaraflokki.
Þá leyfum Vér þér að bera einkennisbúning riddara þeirrar orðu og
að bera viðeigandi heiðursmerki, þ. e. gullkross átthyrndan, sem á rauðu
yfirborði sýnir í miðju mynd hins heilaga Gregoríusar mikla. Þessi kross
á að vera festur við borðalykkju úr silki með rauðum grunni, en gul til
hliðanna, og festast vinstra megin, eins og önnur riddara-heiðursmerki.
En til þess að enginn mismunur sé í burði þessa einkennisbúnings og
þessa kross, þá látum Vér skýringu fylgja þessu skjali.
Gefið í Róm hjá heilögum Pétri, undir hring Fiskimannsins,
XVIII. dag desember-mánaðar, árið MCMXXV, hið fjórða ár páfadóms Vors.
Vorum elskulega syni
Gunnari Einarssyni.
P. Card. Gasparri,
a Secretis Status.
MerUi krossins.