Merki krossins - 01.01.1926, Page 19

Merki krossins - 01.01.1926, Page 19
Hrynhenda send hans Eminentíu Vilhjálmi kardínála van Rossum. Hingað sótti hærri enginn. Hæstan bar að vegsemd glæstri tiginn gest um vegu vazta, virðan mest af Rómahirðum; postula Krists og páfa næsfan, Péturskirkju sæmdar virkan; lofi skrýddan aldir yHr, ítran snilld og háan mildi. Heimur undrast sagðan sóma, sæmd, er landi voru tæmdist; — signuð krossi suðræn messa sungin oss af Rómatungu. Veitti oss faðir dagheims drótta dýran teig af náðarveigum: Mungát þyrstra millíóna, mál van Rossums kardinála. Aldinn sté á fanna-foldu; friður snart við þjóðar hjarta; yfir mildum öðling hvíldi andans ljómi og hátign Róma; var sem upp frá víði bæri vald og snilli fyrri alda; landið missta Ijómans kenndi; lutu hjörtu geisla björtum. Koma hans var kyndil-ljómi, klukknahringing Róma-fingra; tærði hann oss í nausti norður náðargjöf að Drottins ráði; veitti oss ríkan vígslu mætti valdastól, er sigri haldi, yztan (hér við útsæ reisti aldamerki páfa valdi). — 19 — Merki krossins.

x

Merki krossins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Merki krossins
https://timarit.is/publication/611

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.