Merki krossins - 01.01.1926, Qupperneq 27
þennan vitnisburð hafa þúsundir píslar-
votta fórnað lífi sínu með kvalafullum
dauðdaga.
Fyrir oss er því aðeins um tvent að
velja: Annaðhvort verðum vér að trúa
því, að ]esús hafi sannarlega fram-
kvæmt kraftaverk og þá verðum vér
að falla filbiðjandi á kné og viðurkenna
hann sem Drottin vorn og Quð eða
vér verðum að ganga í lið með óvin-
um Krists og kristindómsins; önnur
leið né annar vegur er ekki til. Krist-
indómur, sem ekki er bygður á guð-
dómi Jesú Krists, er helber hégómi.
Að hafna guðdómseðli Jesú Krisfs
og vilja að öðru leyti heita kristinn
maður, er hin mesta fásinna. Það að
Qera Jesúm blátt áfram að manni, er
að breyta gegn allri heilbrigðri skynsemi.
Jesús Kristur er sannur Guð, þetta
verður að vera orðtak allrar kristninnar.
Sé Kristur ekki Guð, þá er trú vor til
einskis nýt. Sé Kristur ekki Guð, þá
eru allar bækur heilagrar ritningar hinn
mesti leyndardómur, sem þekkist í heim-
inum, þá er uppruni hinna heilögu bóka
ritningarinnar furðuverk, sem enginn
menskur maður fær skilið.
Vér verðum allir að vera þess full-
vissir, að Jesús Kristur er hinn eingetni
Sonur Guðs Föður, sannur Guð eins
og Faðirinn og Heilagur Andi.
Jesús Kristur er sannur Guð; guð-
dóm sinn hefir hann sannað með orð-
um og kraftaverkum.
Jesús Kristur er sannur Guð. Um það
vitnar blóð allra postulanna og þúsunda
píslarvotta.
Jesús Kristur er sannur Guð; þessi
kenning hefir á öllum öldum verið
grundvöllur kristindómsins og mun
standa óbifanleg til enda heims.
Jesús Kristur er sannur Guð; þetta
er og verður óbifanleg sannfæring vor
í lífi og dauða. Með Pétri viljum vér
segja: Herra, hvert ættum vér að fara,
þú einn hefir orð eilífs Iífs, þú ert
Kristur, Sonur hins lifanda Guðs. —
Jesús, hvar annarsstaðar en hjá þér
gætum vér fundið huggun í þjáningum,
traust í dauðanum og von um eilíft líf.
I þér einum finnum vér frelsi, hjá þér
einum öðlumst vér eilífa sælu og því
skalt þú vera elskaður og tilbeðinn sem
hinn eilífi og alvaldi Guð um alla
eilífð.
/VI. Meulenberg,
postullegur prefekt.
Tala kaþólskra manna.
Samkvæmt síðusfu skýrslum er tala kaþólskra manna um allan heim
324,328,408. Þeir skiftast í hinum ýmsu álfum eins og hér segir:
Evrópa........... 190,779,213
Asía.............. 15,416,573
Afríka............. 3,271,228
Ameríka......... 112,790,464
Ástralía........... 2,070,930
— 27 —
Merki krossins.