Merki krossins - 01.01.1926, Page 28
Son Máríu, sonr inn dýri,
son menniligr guðs og hennar,
kenn þú mér að forðaz fjandann
fjölkunnigan, en þér að unna.
Sé þér dýrð með sannri prýði,
sunginn heiðr af öllum tungum
eilífliga með sigri og sælu,
sæmd og vald þitt minkaz aldri.
Fyr Máríu faðm inn dýra,
fyr Máríu grát inn sára
lát mig þinnar lausnar njóta
lifandi guð með föður og anda.
Ævinliga með lyktum lófum
lof ræðandi á kné sín bæði
skepnan öll er skyld að falla,
skapari minn, fyr ásján þinni.
Beiðig nú fyr Máríu móður
mjúka bæn og fagran tænað
á treystandi, ]esú Hriste,
yðra vægð, er týndum nægðiz,
pín mig áðr en deítr á dauði,
drottinn minn, í kvölum og sóttum,
að því minnur sé eg þá síðan
slitinn af fjandans królu bitrum.
Máría, ert þú móðir skærust,
Máría, lifir þú sæmd í hári,
Máría, ert þú af miskunn kærust,
Máría, létt þú synda fári,
Máría, lít þú mein þau er vóru,
Máría, lít þú klökk á tárin,
Máría, græð þú mein en stóru,
Máría, dreif þú smyrsl í sárin.
Þú ert hreinlífis dygðug dúfa,
dóttir guðs og lækning sótta,
giptu vegr og geisli lopta,
gimsteinn brúða og drotning himna,
guðs herbergi og gleyming sorga,
gleðinnar past og eyðing lasta,
líknar æðr og lífgan þjóða,
loflig mær, þú ert englum hæri.
Móðir oss er Máría þessi
mektarblóm og full af sóma,
glæsileg sem roðnust rósa
runnin upp við lifandi brunna,
rót ilmandi lítillætis,
logandi öll með skírleiks anda,
guði unnandi og góðum mönnum,
guði líkjandi í dygðum slíkum.
„Lilja
Merki krossins.
28 —